Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2019
svg
229,2 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Oið hús - Iðunnarbrunnur 2 Reykjavík - fimmtudaginn 10. október klukkan 18:00 - 18:30

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir virkilega glæsilegt og bjart 6 herbergja parhús á tveimur hæðum við Iðunnarbrunn 2 í Reykjavík. Húsið, sem er byggt árið 2019, er alls 229,2 fermetrar að stærð og þar af 26,0 fermetra innbyggður bílskúr. Húsið er afar sjarmerandi, með aukinni lofthæð á báðum hæðum og með stórri afgirtri verönd til suðurs. Stórar svalir austurs og fallegt útsýni frá efri hæð til fjalla. Stórir gluggar einkenna húsið sem hleypa inn mikilli birtu. Húsið er klætt fallegri álklæðningu og því viðhaldslítið.

Áætlað fasteignamat næsta árs (2025) er kr. 145.750.000,-

Fjögur svefnherbergi eru í húsinu. Tvö baðherbergi eru á sitthvorri hæðinni. Eldhús er opið við stofu/borðstofu neðri hæðar með útgengi á stóra skjólgóða verönd. Rúmgóð sjónvarpsstofa er staðsett á efri hæð. Þvottaherbergi og rúmgóður og snyrtilegur bílskúr. Gólfhitakerfi er í öllu húsinu og innfelld lýsing í loftum.

Lóðin er falleg og viðhaldslítil. Mynstursteypt bílastæði með snjóbræðslu fyrir framan hús. Glæsileg afgirt verönd (steypt og viðar) til suðurs með kvöldlýsingu. Staðsetning hússins er afar góð í rólegri barnvænni götu. Frábærir útvistamöguleikar þar sem húsin standa í næsta nágrenni við Leirtjörn og Úlfarsfell. 

Nánari lýsing:
Neðri hæð:

Forstofa: Er rúmgóð með flísum á gólfi og góðum skápum. Gólfhiti og innfelld lýsing í lofti.
Baðherbergi I: Er flísalagt í gólf og veggi. Upphengt salerni, flísalögð sturta með glerþili og innb. sturtutækjum og fallegri innréttingu við vask. Handklæðaofn og innfelld lýsing í lofti.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu með góðu skápaplássi og eyju. Innfelld lýsing, stæði fyrir tvöfaldan kæliskáp, spansuðuhelluborð með viftu, innb. uppþvottavél og bakaraofn. Eldhús er opið stofu/borðstofu með gólfsíðum gluggum til suðurs.
Stofa: Með harðparketi á gólfi og stórum gólfsíðum gluggum til suðurs og austurs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengi um rennihurð á stóra afgirta verönd til suðurs í bakgarði.
Verönd: Er stór og afgirt (steypt og viðargrindverk) með kvöldlýsingu. Skjólgóð til suðurs. 

Bílskúr: Er 25,0 fermetrar að stærð og mjög snyrtilegur. Mikil lofthæð og gluggar til austurs. Inngengt frá forstofu og flísar á gólfi. Rafmagnsopnum á bílskúrshurð. Innrétting með vask (heitt og kalt vatn).

Efri hæð: Gengið upp á efri hæð um bjartan stigagang með stórum glugga til austurs.
Sjónvarpsstofa: Er rúmgóð með harðparketi á gólfi og mikill lofthæð. Gluggar til austurs og suðurs. Útgengi á svalir.
Svalir I: Eru rúmgóðar til austurs.
Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi og gluggum til norðurs. Aukin lofthæð og útgengi á svalir. Góðir skápar á heilan vegg.
Svalir II: Snúa til norðurs.
Baðherbergi II: Með flísum á gólfum og veggjum. Baðkar með innb. sturtutækjum. Falleg innrétting við vask og upphengt salerni. Handklæðaofn. Aukin lofthæð og innfelld lýsing í loftum.
Þvottaherbergi: Flísar á gólfi og innrétting. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Aukin lofthæð.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum til suðurs með fallegu útsýni. Aukin lofthæð og innfelld lýsing í loftum.
Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum til austurs.
Svefnherbergi IV: Með harðparketi á gólfi og glugga til norðurs og austurs.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is.

img
Heimir Hallgrímsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. sep. 2019
46.450.000 kr.
66.900.000 kr.
229.2 m²
291.885 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur