Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Samúelsson
Andri Sigurðsson
Þórey Ólafsdóttir
Sveinn Eyland
Ingibjörg Agnes Jónsdóttir
Guðrún Diljá Lúðvíksdóttir
Monika Hjálmtýsdóttir
Júlíus Jóhannsson
Freyja Rúnarsdóttir
Jón Óskar Karlsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1978
svg
304,9 m²
svg
8 herb.
svg
3 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

***Strýtusel 16, 109 Reykjavík***
 
Jens Magnús Jakobson lgf í samstarfi við Landmark fasteignamiðlun kynna í einkasölu Strýtusel 16, 109 Reykjavík. Eignin er skráð 304,9 fm þarf af er bílskúr 38,4 fm.  Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyn, er virkilega skemmtilega innréttað og mikið búið að endurnýja. Aðkoman að húsinu er falleg, hellulagt plan með snjóbræðslu. Útisvæðið og garðurinn er virkilega vel heppnað og skipulagið gott.

Eignin verður eingöngu sýnd í einkasýningum.
 
Nánari upplýsingar og bókanir í skoðun hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@landmark.is

 
Nánari lýsing:
Neðri hæð: Komið er inn í húsið á neðri hæð. Á þeirri hæð eru svefnherbergin og stórt baðherbergi með baðkari, sturtu og fallegri innréttingu. Rúmgott fataherbergi með stórum skáp. Inn af hjónasvítu er fallegt baðherbergi með sturtuklefa, upphengdu salerni og fallegri innréttingu. Hringstigi er upp á efri hæðina með stórum gluggum sem gefa góða birtu. Á hæðinni er einnig þvottahús með góðri innréttingu, þvottavél og þurrkari eru í vinnuhæð. Innangengt er í rúmgóðan tvöfaldan bílskúr.
Útgengi á stóran lerki pall með góðum potti. Allur garðurinn er afgirtur með fallegum trjám. Þetta svæði er algjör paradís.

Efri hæð: Þegar komið er upp stigan blasir við eitt stórt opið rými með mikilli lofthæð. Eldhúsið er með stórri hvítri innréttingu. Fallegur arin er í stofunni. Úr borðstofu er útgengi á stórar svalir sem liggja með allri framhlið hússins. Þetta er virkilega fallegt rými með skemmtilegum “fídúsum”. Baðherbergi er á hæðinni með sturtu og upphengdu salerni.
 
Kjallari: Búið er grafa út kjallara undir húsinu sem er allt að 120 fm (það er ekki inn í fermetratölu húsins). Kjallarinn er með sérinngagni við hlið hússins. Það rými hefur að mestu verið notað sem frístundarými. Tveir gluggar eru í rýminu og búið er að koma þar fyrir baðherbergi með salerni og innréttingu.

Þetta er eign sem mjög mikið er búið að endurnýja ásamt að breyta skipulagi og hefur það heppnast virkilega vel.

Vakin er athygli á því að teikningarnar endurspegla ekki skipulag hússins í dag.
 
Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasla:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@landmark.is
 

***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***


 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

LANDMARK fasteignamiðlun

LANDMARK fasteignamiðlun

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. feb. 2019
94.350.000 kr.
99.000.000 kr.
304.9 m²
324.697 kr.
11. júl. 2014
61.700.000 kr.
68.500.000 kr.
304.9 m²
224.664 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
LANDMARK fasteignamiðlun

LANDMARK fasteignamiðlun

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
phone