Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Katla Hanna Steed
Vista
fjölbýlishús

Skipholt 1A 102

105 Reykjavík

99.900.000 kr.

841.618 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2010545

Fasteignamat

32.050.000 kr.

Brunabótamat

31.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1960
svg
118,7 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sérinngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Lyfta

Lýsing

Miklaborg kynnir: Íbúð 102, glæsileg rúmgóða 4ra herbergja íbúð, í fallegu enduruppgerðu lyftuhúsi í útjaðri miðborgarinnar. Inngangur frá götu fyrst til hægri við undirgang. Íbúðin er skráð 118,7 fm og skipar anddyri, hol, bað með þvottaaðstöðu, 3 herbergi, alrými með útgengi út á 14,5 fm svalir og bað, ásamt 9,5 fm geymslu í kjallara. Harðparket á gólfum, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Falleg íbúð með aukinni lofthæð. Einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5. hæð. Örstutt göngufæri í matvöruverlslun og niður á Hlemm sem er að umbreytast í grænt og vænt almenningsrými.


Allar frekari upplýsingar gefur Gabriel Máni Hallsson aðst.m. fasteignasala í síma 772:2661 eða gabriel@miklaborg.is

Skipholt 1 er glæsileg endurbygging á frábærum stað í hjarta Reykjavíkur á horni Stórholts og Skipholts mót hásuðri. Í reisulegu húsi þar sem Listaháskóli Íslands var starfræktur í áratugi hafa nú verið innréttaðar 34 heillandi íbúðir og tvö atvinnurými. Einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5.hæð hússins auka lífsgæði allra íbúa, en þar er sólríkt og magnað útsýni til sjávar og fjalla.

HAF studio kom að hönnun og efnisvali í íbúðirnar. Allar íbúðir afhendast fullbúnar með 8mm harðparketi frá Agli Árnasyni , og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél frá AEG.

Innréttingar koma frá GKS, flísar frá Harðviðarvali, hurðar frá Agli Árnasyni, blöndunartæki í eldhúsi og baðherbergi eru frá Grohe, sturtutæki eru einnig frá Grohe, salerni eru með hæglokandi setum, heimilistæki eru frá AEG (ofn, helluborð, innbyggður ísskápur, vifta með kolafilter og uppþvottavél) Hefðbundið ofnakerfi er á íbúðum með hitastýribúnaði frá Danfoss.

Á bak við húsið er heillandi og skjólgóður inngarður hannaður af Hermanni Ólafssyni landslagsarkitekt.

Þar kallast fjölbreyttur gróður á við hellur og útskorið malbik sem myndar göngustíg sem liðast eins og lækur eftir garðinum. Pollaljós og garðljós gefa fallega birtu. Innst til hægri er upplyft hellulagt dvalarsvæði.

Hér er allt sem þarf fyrir nútímalegan miðborgarlífsstíl. Fjöldi veitingastaða og fjölbreytt þjónusta í stuttu göngufæri að ógleymdri útivistarperlunni Klambratúni.

Íbúar í Skipholti eiga rétt á íbúakorti og mega þá leggja í gjaldskyldum stæðum á svæði H á myndinni (sjá mynd í myndasafni) auk þess sem fullt er af ógjaldskyldum stæðum td í Skipholtinu. Íbúakortið kostar kr. 1.400- á mánuði fyrir rafmagns og vetnis bifreiðar, en kr. 2.800 fyrir aðrar tegundir bifreiða.

Sjá upplýsingar á heimasíðu verkefnisins https://skipholt1.is/

Allar frekari upplýsingar gefur Gabriel Máni Hallsson aðst.m. fasteignasala s:772:2661 og gabriel@miklaborg.is, Jórunn Skúladóttir lgf s:845-8958 og jorunn@miklaborg.is, Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og thorunn@miklaborg.is, Kjartan Ísak Guðmundsson lgf s:663-4392 og kjartan@miklaborg.is og Katla Hanna Steed lgf s:822-1661 og katla@miklaborg.is.

Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík