Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
raðhús

Fálkahöfði 7

270 Mosfellsbær

134.900.000 kr.

911.486 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2232998

Fasteignamat

99.700.000 kr.

Brunabótamat

76.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1997
svg
148 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 28. október 2024 kl. 16:30 til 17:30

Lýsing

** Opið hús mánudaginn 28. október frá kl. 16:30 til 17:30 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
  
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög fallegt og mikið endurnýjað 148,0 m2 endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Fálkahöfða 7 í Mosfellsbæ. Birt stærð eignarinnar er 148 m2, þar af raðhús 119,4 m2 og bílskúr 28,6 m2. Húsið skiptist í forstofu, gang, stofu/borðstofa, sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Tvær timburverandir, bæði fyrir framan og aftan hús. Góðurhús og garðskúr. Vinsæl staðsetning, stutt í Lágafellsskóla, leikskólann Hulduberg og Lágafellslaug. Einnig er mjög stutt á golfvöll Mosfellsbæjar. 

Skv. seljanda var farið í eftirfarandi framkvæmdir árið 2022:

Húsið fékk allsherjar yfirferð. Neysluvatnslagnir endurnýjaðar. Lagnagrind yfirfarin og mikið endurnýjuð. Rafmagnstafla uppfærð í 3ja fasa rafmagn. Raflagnir í húsinu endurnýjaðar. Nýtt harðparket frá Birgisson. Skuggafúga í lofti. Innbyggð lýsing í lofti, innbyggð kastarabraut í eldhúsi, innbyggð kastarabraut í stofu. Ný gólfefni. Nýjar svartar innihurðar frá Birgisson. Eldhús, baðherbergi og þvottahús endurnýjað.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax

Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum frá EBSON á gólfi, gólfhita og nýlegum fataskáp.
Eldhús er í opnu rými með stofu/borðstofu og parketi á gólfi. Falleg innrétting og eyja með miklu skápaplássi. Öll tæki nýleg. Bakaraofn og Combo ofn með örbylgju frá AEG. Spanhelluborð frá Husqvarna með innbyggðum háfi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél frá BOSCH. Borðplata sérsmíðuð með hliðum úr harðplasti. Blöndunartæki og vaskur nýleg. 
Sjónvarpshol er með parketi á gólfi. Fyrir ofan stofuglugga og bakgarðsdyr er innfelling fyrir gardínubraut, hægt að tengja lýsingu inn í innfellinguna.
Gangur er á milli herbergja. Af gangi er gengið út í bakgarð með timburverönd í vesturátt. Í garði er gróðurhús og útigeymsla.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parket á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og nýlegum fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi og nýlegum fataskáp.
Baðherbergi er með flísum frá EBSON, hiti í gólfi, handklæðaofn, innfelld handlaugatæki, innfelld sturtutæki, sturtugler, innfelld flísalögð hillur í sturtu. Innrétting með sérsmíðaðri borðplötu úr harðplasti. Sérsmíðaðir speglar frá ÍSPAN
Þvottahús er með flísum frá EBSON. Auka salerni, nýleg blöndunartæki, þvottavaskur og innrétting. Hægt að bæta við handlaug fyrir framan salerni. Handklæðaofn.
Bílskúr er með flísum á gólfi. Innrétting og vaskur. Stórt geymsluloft.

Bílaplan er hellulagt og með snjóbræðslu. Við bílaplan er geymsluskúr sem nýtist sem sorptunnuskýli og geymsla. 

Verð 134.900.000 kr.



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. nóv. 2021
59.000.000 kr.
90.900.000 kr.
148 m²
614.189 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ