Lýsing
ÍBÚÐ 101 NEÐRI HÆÐ, íbúðin er 75.3 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymsla.
Nánari lýsing:
Anddyri með einföldum fataskáp.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er út á hellulagða verönd til suðurs úr alrými.
Eldhús, sérsmíðuð innrétting, AEG ofni í vinnuhæð, spanhelluborði og viftu sem fellur undir efri skáp.
Stálvaskur og Grohe blöndunartæki, gert er ráð fyrir innbyggðri uppþvottavél (frontur á vél fylgir en ekki vélin sjálf).
Svefnherbergin eru tvö, fjórfaldur fataskápur er í hjónaherbergi, einfaldur fataskápur er í minna herbergi.
Baðherbergi með vaskinnréttingu, speglaskápur, upphengt salerni og sturta, sturtuhorn er flísalagt, gluggi, gólfhiti er á baðherbergi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Geymsla er staðsett inn af alrými.
Gólfefni: Harðparket er á gólfi í alrýmis, svefnherbergja og geymslu. Flísar eru á baðherbergi og anddyri.
T.ark arkitektar eru aðalhönnuðir hússins. Edenmörk 1 er fjögurra íbúða staðsteypt tveggja hæða hús. Allir útveggir ásamt veggjum á milli íbúða eru staðsteyptir.
Húsið er klætt að utan með málm- og timburklæðningu.
Sérinngangur er í íbúðina. Sameiginleg lóð er frágengin, sorptunnuskýli, opið hjólaskýli er á lóð. Miðlægt torg er á milli húsanna á svæðinu þar sem eru fjögur lítil gróðurhús sem íbúar svæðisins geta leigt af sveitarfélaginu til eigin nota.
Bílastæði eru í sameign. Húsfélag er starfrækt í eigninni. Lóð er sameiginleg 486,4 m² leigulóð.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 250-0904.
Stærð: Íbúð 75.3 m².
Brunabótamat: 41.550.000 kr.
Fasteignamat: 47.900.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat ársins 2025: 51.450.000.-
Byggingarár: 2021
Byggingarefni: Steypa.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala