Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
svg

251

svg

218  Skoðendur

svg

Skráð  25. okt. 2024

fjölbýlishús

Lindasíða 2 íbúð 303

603 Akureyri

56.900.000 kr.

627.343 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2148780

Fasteignamat

46.046.000 kr.

Brunabótamat

50.960.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1992
svg
90,7 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
svg
Laus strax

Lýsing

Lindasíða 2 íbúð 303 - Góð 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi með skemmtilegu útsýni til suð- vesturs - Heildar stærð 90,7 m² Þar af telur sér geymslu í kjallara 7,4 m² og er hún á sér fastanúmeri.
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning 


Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, sólstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu, auk sér geymslu í kjallara.

Forstofa er með flísum á gólfi og hvítum skápum.
Eldhús er með ljósri sprautulakkaðri innréttingu með flísum á milli skápa og á gólfi. 
Stofa og eldhús eru í opnu rými og þar eru flísar á gólfi.
Sólstofa er inn af stofu, þar eru flísar á gólfi og þaðan er gengið út á svalir til suð- vesturs.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með hvítum fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi er með slitsterku efni á gólfi og flísum á hluta veggja. Ljós innrétting sprautulakkaðri og sturta. Tengi fyrir þvottavél er inni á baðherbergi.
Tvær geymslur fylgja íbúðinni, önnur innan íbúðar með flísum á gólfi og hillum á hluta veggja, hin geymslan er í kjallara og skráð 7,4 m² að stærð.

Annað
- Búið er að endurnýja hluta af gleri.
- Falleg sameign.
- Snyrtileg og sameiginleg lóð.
- Mikið og gott útsýni er úr íbúðinni.
- Ný lyfta var sett upp árið 2023.
- Eign fyrir 60 ára og eldri.
- Yfirbyggður gangur er á milli Lindasíðu 2 og 4 og yfir í þjónustumiðstöðina í Bjargi.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone