Lýsing
Miklaborg og Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali kynna : Snyrtilega og vel umgengna samtals 160 fm hæð og bílskúr. íbúðin er á 2. hæð í fjórbýli á góðum stað. Fjögur svefnherbergi, tvær stofur með útgengi á góðar suður svalir, eldhús, baðherbergi og snyrting. Tveir inngangar eru í íbúðina.
Geymsla á jarðhæð og þar er einnig sameiginlegt þvottahús. Sameign er mjög snyrtileg og vel umgengin.
Húsið lítur vel út og hefur verið vel sinnt.
Nánari upplýstingar gefur : Þórhallur Biering í síma 896-8232 eða thorhallur@miklaborg.is
Eignin skiptist í forstofu, tvær stofur, eldhús, 4 svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu, geymslu og bílskúr.
Birtar stærðir skv. HMS : Íbúð 130,8 fm, geymsla 5,2 og bílskúr 24. Samtals 160 fm.
Nánari lýsing :
Komið inn í snyrtilegan stigagang og gengið upp eina hæð.
Forstofa er rúmgóð, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa eru bjartar, teppi á setustofu og parket á borðstofu. Útgengi á góðar suður svalir með fallegu útsýni.
Eldhús er við hlið borðstofu. Ágæt innrétting, flísar á gólfi og á milli efri og neðri skápa. (Mögulegt að opna eldhús inn í borðstofu).
Svefnherbergi eru fjögur og parket á gólfi eins þeirra og dúkur á hinum þremur.
Baðherbergi er allt flísalagt, baðkar og ágæt innrétting.
Gestasnyrting er innst á gangi.
Gangur er með parketi á gólfi.
Geymsla sem er 5,2 fm er á jarðhæð hússins.
Sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð hússins.
Bílskúr stendur að húsinu. Útgengt er í baklóðina. Bílastæði fyrir framan bílskúrinn.
Garðurinn er í óskiptri sameign. Baklóðin er til suðurs og því afar skjólgóð.
Björt, snyrtileg og vel umgengin sérhæð ásamt bílskúr á frábærum stað í götu þar sem lokað er fyrir gegnumstreymi og því lítil umferð.
Nánari upplýsingar gefur : Þórhallur Biering í síma 896-8232 eða thorhallur@miklaborg.is