Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2009
79,9 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Útsýni
Lyfta
Lýsing
Domusnova og Ingunn Björg kynna vandaða, fallega og vel skipulagða 3 herbergja íbúð á 2. hæð með sérinngangi af svölum í góðu lyftuhúsi við Eskivelli í Hafnarfirði. Rúmgóðar svalir sem snúa til suð - vesturs. Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar frá Fagus eru í eigninni, granítborðplötur í eldhúsi og baðherbergi ásamt sólbekk í stofu. Eikarparket á gólfum fyrir utan votrými. Íbúðin skiptist á eftirfarandi hátt: Forstofa, eldhús, stofa, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús innan íbúðar, geymsla í sameign. Skv. HMS er eignin samtals skráð 79,9 fm2, þar af er 6 fm2 geymsla í sameign. Góð staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóli og leikskóli í göngufæri.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi.
Eldhús: Mjög rúmgóð og falleg hvít innrétting, laus eyja, granítborðplata, niðurfelldur vaskur, ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél, span helluborð, háfur. Eikarparket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð með stórum gluggum með granítsólbekk. Útgengt er úr stofunni út á rúmgóðar flísalagðar svalir sem snúa til suðvesturs. Eikarparket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með góðum skápum. Eikarparket á gólfi.
Barnaherbergi: Notalegt og fallegt, skápur, eikarparket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, falleg eikarinnrétting með granítborðplötu og speglskápum á vegg. Baðkar með sturtuþili, handklæðaofn,upphengt salerni.
Þvottahús: Sérþvottahús er inn af baðherbergi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Vinnuborð með vaski, hillur á vegg. Flísalagt gólf.
Geymsla: Í sameign er 6 fm 2 sérgeymsla ásamt hjóla og vagnageymslu.
Snyrtileg og fín sameign með lyftu, sérinnangur í íbúð af svölum.
Nánari upplýsingar veita:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. nóv. 2020
35.000.000 kr.
40.000.000 kr.
79.9 m²
500.626 kr.
30. jan. 2013
18.200.000 kr.
21.400.000 kr.
79.9 m²
267.835 kr.
12. feb. 2010
16.650.000 kr.
19.200.000 kr.
79.9 m²
240.300 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024