Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Snorrabraut 56

105 Reykjavík

63.900.000 kr.

751.765 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2008553

Fasteignamat

68.700.000 kr.

Brunabótamat

46.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1992
svg
85 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Lyfta
svg
Laus strax
svg
Heldri borgarar
Opið hús: 14. nóvember 2024 kl. 16:30 til 17:00

Opið hús fimmtudaginn 14. nóvember 2024 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

Lýsing

Heimili fasteignasala kynnir til sölu rúmgóða og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð með skjólgóðri suður verönd á kyrrlátum stað í bakhúsi fyrir +55 ára að Snorrabraut 56b í 105 Reykjavík. Eignin er skráð 85 fm að stærð og skiptist í anddyri/hol, eldhús, borðstofu, setustofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu innan íbúðar auk þess sem eign tilheyrir skjólgóð suður verönd. Falleg og vel skipulögð eign þar sem stutt er í Sundhöll Reykjavíkur, miðbæinn, Klambratún og alla helstu þjónustu. Ath! Eignin er laus til afhendingar.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., s:896-2953, brynjolfur@heimili.is.


Nánari lýsing.
Anddyri: rúmgott og bjart með ágætum fataskáp. Á gólfi er parket. 
Eldhús: ljós innrétting með góðu skápaplássi og ágætri vinnuaðstöðu. Á milli borðplötu og efri skápa eru flísar og á gólfi er parket.
Borð- og setustofa: í opnu og björtu rými með eldhúsi, á gólfi er parket, til suðurs eru stórir gluggar og frá setustofu er útgengt á skjólgóða suður-verönd eignar.
Hjónaherbergi: afar rúmgott, gluggar á tvo vegu, rúmgóður fataskápur innan herbergis og parket á gólfi.
Svefnherbergi: parket á gólfi, gluggi með opnanlegu fagi. 
Baðherbergi: ágæt innrétting, ,,walk in" sturta, flísar á veggjum, dúkur á gólfi og á baðherbergi er tengi fyrir þvottavél.
Geymsla: rúmgóð og innan íbúðar.

Falleg og vel skipulögð íbúð á kyrrlátum stað þar sem stutt er í miðbæ Reykjavíkur sem og alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., S:896-2953, brynjolfur@heimili.is


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Brynjólfur Snorrason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. ágú. 2016
31.850.000 kr.
34.200.000 kr.
85 m²
402.353 kr.
10. maí. 2013
24.300.000 kr.
22.900.000 kr.
85 m²
269.412 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík