Lýsing
Miklaborg kynnir:
Glæsilegt fjölbýlishús með 2ja til fimm herbergja íbúðum á frábærum stað í hinu nýja Hamrahverfi í Hafnarfirði.
- FLESTAR ÍBÚÐIR FALLA UNDIR HLUTDEILDARLÁN HMS.
- Sérmerkt bílastæði fylgir öllum íbúðum með möguleika á rafbílahleðslu við hvert stæði.
- Nálægð við náttúru og skóla og er leikskóli er fyrirhugaður í nokkra metra fjarlægð.
- Ný Ásvallabraut veitir greiða samgönguleið til og frá svæðinu.
- Vandaðar Arens innréttingar og tæki frá Ormsson. Allar innréttingar og skápar ná upp í loft.
Íbúð 104. Vel skipulögð og björt 84,3 fm, þriggja herbergja íbúð á 1. hæð með sérafnotareit. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu.
EIGNIN FELLUR UNDIR HLUTDEILDARLÁN HJÁ HMS www.hlutdeildarlan.is
NÁNARI LÝSING: Eignin skiptist í anddyri/hol með góðu skápaplássi. Inn af anddyri er á aðra hönd svefnherbergi með skápum og baðherbergi er með sturtu og fallegri innréttingu. Þvottaaðstaða er inni á baðherbergi. Mjög rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum er inn af alrými. Eldhús er með fallegri innréttingu og er opið inn í rúmgott alrými, sem samanstendur af stofu og borðstofu. Stór sérafnotareitur er út af alrými. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði. Íbúðin afhendist fullbúin án gólfefna. Vandaðar innréttingar frá Arens (sölu- og þjónustuaðili: Ormsson).
ATH myndir úr sýningaríbúð
Allar nánari upplýsingar veita
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 6592634 eða stefan@miklaborg.is
Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is
Ingimundur Ingimundarson aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is