Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þorbjörnsson
Kristinn Sigurbjörnsson
Haukur Andreasson
Elín Frímannsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1978
svg
234,2 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
Opið hús: 15. nóvember 2024 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Lágmói 9, 260 Reykjanesbær. Eignin verður sýnd föstudaginn 15. nóvember 2024 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu raðhús á tveimur hæðum við Lágmóa 9 á besta stað í Njarðvík. Eignin er skráð 234,2 fm, þar af er bílskúr 33,8fm. 

Eignin skipstist í forstofu, forstofu salerni, þvottahús og forstofu herbergi, hol, stofu og borðstofu, eldhús, garðskála, 4 herbergi baðherbergi, og bílskúr. Aðkoma er að stóru steyptu bílaplani og gangstígur að inngangi. Lóð einnig tyrft að framan. 
Staðsetning eignar er mjög góð í rólegri botnlangagötu, stutt í leik og grunnskóla sem og alla helstu þjónustu.


*** Skemmtilegt hús
*** Járn á þaki endurnýjað 2017/2018
*** Bílskúr
*** Snyrtileg aðkoma
*** Róleg og rótgróin botnlangagata

Nánari upplýsingar veitir Dísa Edwards Löggiltur fasteignasali, í síma 8636608, tölvupóstur disa@allt.is

Nánari lýsing eignar neðri hæð:
Forstofa flísalögð með fatahengi og skáp. Flísar á gólfi.
Forstofusalerni með handlaug og salerni. Flísar á gólfi.
Þvottahús er afar rúmgott og hefur hvíta, snyrtilega innréttingu sem rúmar vel þvottavél og þurrkara, gott borðpláss, vask og efri skápa. Flísar á gólfi.
Forstofuherbergi er mjög rúmgott og hægt að loka af með rennihurð. Flísar á gólfi. Þar er annar inngangur inn í eignina með miklu skápaplássi.
Stofa / hol flísalagt og skemmtilega uppsett á pöllum. Stórir, gólfsíðir gluggar sem gefa góða birtu. Hægt að ganga út á sólpall. Parket á gólfi.
Eldhús hefur flísalagt gólf. Eikar innrétting með dökkri granít á borði. Stór eyja með helluborði og mikið skápapláss. Bökunarofn og örbylgjuofn í vinnuhæð.
Garðskáli er inn af eldhúsi þar sem borðstofa er og hugguleg minni stofa. Flísar á gólfi. Útgengni er útá sólpall.

Nánari lýsing eignar efri hæð:
Svefnherbergisgangur parketlagður
Hjónaherbergi hefur parket á gólfi. 
Barnaherbergi eru tvö. Parket á gólfi 
Baðherbergi hefur hvíta, eldri innréttingu með speglaskáp á vegg, salerni, baðkar og sturtu. Hvíta flísar á gólfi. 

Vel við haldið og skipulagt fjölskylduhús í hjarta Njarðvíkur.

Nánari upplýsingar veitir Dísa Edwards Löggiltur fasteignasali, í síma 8636608, tölvupóstur disa@allt.is
Vegna eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.


 
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 kr m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík

phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. apr. 2021
54.900.000 kr.
63.000.000 kr.
234.2 m²
269.001 kr.
15. des. 2006
22.285.000 kr.
34.000.000 kr.
234.2 m²
145.175 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík

phone