Lýsing
Miklaborg kynnir: Borgartún 24. Þriggja herbergja 87 fm íbúð ásamt geymslu. Eign merkt 501 er á 5. hæð með stæði í bílageymslu B29. Suðurhornið á húsinu sem liggur við Nóatúnið. Eignin skiptist í anddyri, baðherbergi með þvottaaðstöðu, tvö svefnherbergi, eldhús og stofu með svalir til suðausturs og geymslu á jarðhæð. Sameiginlegur þakgarður á 4. 6. og 7. hæðinni. Einstök staðsetning í hjarta borgarinnar nærri helstu atvinnusvæðum og útivistarmöguleikum.
Nánari upplýsingar veitir Gabriel Máni Hallsson aðst.m. fasteignasala í síma 772 2661 eða gabriel@miklaborg.is
Um er að ræða 64 íbúðir, sem eru í mismunandi stærðum, 2ja herbergja til 4ra herbergja íbúðir í sjö hæða nýbyggingu við Borgartún, 105 Reykjavík.
Heimasíða verkefnis.
Íbúðum er skilað fullbúnum með öllum gólfefnum; Baðherbergi og þvottahús með flísalögðum gólfum og baðherbergi eru með flísalögðum veggjum upp að lofti á a.m.k tvo vegu. Harðparket er á öðrum gólfflötum ásamt hvítum gólflistum. Í lyftuforrýmum að innan eru veggir sandspartlaðir og málaðir. Í stigahúsum verða veggir spartlaðir og málaðir. Veggir og loft í bílageymslu verða grófviðgerðir og rykbundnir með glæru efni. Gólf í geymslum, geymslugangi, hjóla- og vagnageymslu verða lökkuð. Lagnir verða sjáanlegar í loftum í geymslum. Sameign skilast fullbúin með fullfrágenginni lyftu.
Borgartúnið iðar af mannlífi og er steinsnar frá helstu menningarviðburðum borgarinnar.
Eignir verða afhentar í mars 2024 eða fyrr.
Nánari upplýsingar veita:
Gabriel Máni Hallsson aðst.m. fasteignasala í síma 772 2661 eða gabriel@miklaborg.is
Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is
Katla Hanna Steed löggildur fasteignasali í síma 822 1661 eða katla@miklaborg.is
Ingimundur Ingimundarson aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is