Upplýsingar
Byggt 2024
138,3 m²
4 herb.
2 baðherb.
3 svefnh.
Lýsing
Prima fasteignasala kynnir eignina Þórðarbraut 2 í landi Torfastaða í Reykholti. Einstakt tækifæri til þess að eignast stórglæsilegt sumarhús á frábærum útsýnisstað húsið er laust til afhendingar við kaupsamning. Húsið stendur við Þórðarbraut 2 sem er í jarði frístundabyggðar í Landi Torfastaða.
Stórglæsileg nýbygging fullbúið sumarhús á einni hæð á einstökum útsýnisstað í landi Bláskógabyggðar. Frábært útsýni er til flestra átta og afar friðsælt og stutt í allar helstu náttúruperlur. Húsið stendur við Þórðarbraut 2 sem er í jarði frístundabyggðar í Landi Torfastaða í Biskupstungum. Stutt í Friðheima, golfvöllinn á Flúðum og góða veitingastaði, svo fátt eitt sé nefnt.Þetta er staður og hús fyrir þá sem vilja vera út af fyrir sig með villta og fjölbreytta náttúru allt í kring, ásamt mikilli fjallasýn.
Sumarhúsið er á 5.355 m2 eignarlóð. Húsið er skráð 125,1 fm og svo er gestahús eða tómstundahús um 13,2 fm að auki.
Húsið er að mestu klætt Lunawood frá Byko, áltré gluggar eru í húsinu frá Byko. Í stofu er rennihurð á verönd. Hitaveita og gólfhiti er í öllu húsinu. Vandað rafkerfi. Um 160 fm verönd er við húsið. Vandaðar innréttingar eru og gólfefni. Komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu. Gesta snyrting er flísalögð. Eldhús, stofa eru í stóru alrými, upptekin loft, falleg eyja. Eldhúsið er með vönduðum tækjum. Rennihurð úr stofu á stóra verönd. Á herbergis gangi eru þrjú svefnherbergi. Baðherbergi er flísalagt, góð sturta, innrétting, hurð er af baði út á verönd þar sem gert er ráð fyrir heitum potti. Þvottahús er flísalagt með innréttingu. Við húsið er 13,2 fm hús, parket er á gólfi. Tæki í eldhúsi og þvottahúsi fylgja ásamt ljósum. Hljóðvistardúkur er í herbergjum og á herbergis gangi.
Fyrir nánari upplýsingar
Björgvin Þór Rúnarsson
bjorgvin@primafasteignir.is
00354-855-1544
Prima fasteignasala
Suðurlandsbraut 6.
108 Reykjavík
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.