Opið hús: Hringbraut 113, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 05 03 02. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 26. nóvember 2024 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýli í Vesturbæ Reykjavíkur. Húsið er nýlega viðgert að utan. Stutt er niður að sjó þar sem útsýni er stórfenglegt og góðar göngu- og hjólaleiðir.
Fasteignamat 2024 er 50.950.000 kr.
Samkvæmt HMS er eignin skráð 77,2 fm og þar af er geymsla skráð 11,1 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa/hol með fatahengi, málað parket á gólfi.
Stofa/borðstofa rúmgóð og björt með máluðu parketi á gólfi.
Eldhús var endurnýjað 2007, flísar á gólfi..
Svefnherbergi I er rúmgott með góðum skáp og harðparket á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott og hurð sem skilur á milli þess og stofunnar, s.s. hægt að nýta sem stofu eða herbergi.
Baðherbergi er flísalagt.
Sérgeymsla íbúðar í sameign í kjallara.
Sameiginlegt þvottahús þar sem hver er með sitt tengi í sameign í kjallara ásamt góðri þurrkaðstöðu.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign í kjallara.
Nýlegar framkvæmdir utanhúss fólu í sér múr- og þakviðgerðir. Gert fyrir 2-3 árum að sögn seljanda.
Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða á netfanginu hallgrimur@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.