Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Pálmason
Vista
svg

1016

svg

831  Skoðendur

svg

Skráð  6. des. 2024

fjölbýlishús

Bólstaðarhlíð 62

105 Reykjavík

87.500.000 kr.

632.225 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2013363

Fasteignamat

75.050.000 kr.

Brunabótamat

56.520.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1963
svg
138,4 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Fasteignamiðlun og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna fallega, vel skipulagða og standsetta 138,4fm, 4 herbergja íbúð með bílskúr í húsi teiknuðu af Kjartani Sveinsyni á 1 hæð að Bólstaðarhlíð 62, 105 Reykjavík. Bílskúr er 22,8 fm, endabílskúr í bílskúrslengju með heitu og köldu vatni, rafmagni og gryfju. Eignin var öll tekin í gegn að innan árið 2020 á vandaðan og afar smekklegan hátt. Íbúðin er einkar vel skipulögð með stórri og fallegri sofu samliggjandi við eldhús. Fallegir stórir gluggar eru í stofurými. Svefnherbergin eru 3 og eru innaf herbergisgangi. Baðherbergi er einnig innaf herbergjagangi. Baðherbergi var endurnýjað árið 2020 með fallegum flísum á veggjum og gólfi ásamt "walk in" sturtu með vönduðum innbyggðum blöndunartækjum og glervegg. Tvennar svalir, til vesturs úr stofu og til austurs úr hjónaherbergi. Frábær staðsetning í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi með leik- og grunnskóla í nokkra metra göngufæri ásamt fjölbreyttri verslun og þjónustu allt í kring.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@fastm.is

Eignin Bólstaðarhlíð 62 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 201-3363, birt stærð 138.4 fm þar af er geymsla í kjallara skráð 6fm ásamt bílskúr í bílskúrslengju 22,8fm.

Áætlað fasteignamat eignar fyrir árið 2025 skv. HMS er 78.350.000kr.


Íbúðin var standsett árið 2020. Stofu gólfið var flotað til að gera það slétt og sett viðar plankaparket frá Parka á öll gólf að undanskyldu baðherbergi og anddyri. Opnaður veggur sem lokaði eldhús frá stofu. Eldhús er endurnýjað á glæsilegan hátt með innréttingu frá IKEA, Quartz borðsteinn frá Steinprýði á bekkjum, á hlið eyju og upp vegg með quartz stein hillu. Frontar eru frá Haf Studio. Öll tæki eru af vandaðri gerð, eldavél frá SMEG , vaskur og blöndunartæki frá Eirvík. Baðherbergi hefur einnig verið standsett á vandaðan og á fallegan máta með fallegum flísum á veggjum og gólfi og walk in sturtu með glervegg, fallegri innréttingu og spegli með baklýsingu.

Framkvæmdir á húsi og sameign síðustu ár:
- 2019
Stigagangur málaður.
2016 múrviðgerðir samhliða málun blokkarinnar.
- 2016 skipt um gler og glugga á allri austurhlið íbúðarinnar.
- 2009 Skipt um þakrennur og dren.
- 2016 Þak málað var endurnýjað árið 1998.

Nánari lýsing: 
Anddyri:
Flísar á gólfi, innbyggður tvöfalldur fataskápur.
Stofa: Stór og björt með fallegum stórum gluggum. Opið við eldhús. Útgengt út á vestur svalir.
Eldhús: Endurnýjað með IKEA innréttingu, frontum frá Haf Stúdíó og quartz steini frá Steinprýði. Smeg eldavél, Vaskur og blöndunartæki úr Eirvík. Gott skápa og vinnupláss. Opið og í góðri tengingu við stofu.
Herbergjagangur: Gengið inn í 3 herbergi og baðherbergi úr herbergjagangi. Innbyggður skápur við enda gangs.
Herbergi I: Rúmgott með þreföldum skáp.
Baðherbergi: Endurnýjað árið 2020 á vandaðan og fallegan máta. Flíslagt í hólf og gólf, "walk in" sturta með innbyggðum blöndunartækjum, stór handklæðaofn, upphengt klósett ásamt ljósri innréttingu með skúffum og skáp, innfeldum vask með quartz steinplötu á innréttingu ásamt spegli fyrir ofan vask með baklýsingu.
Herbergi II: Gott barnaherbergi með fataskáp.
Hjónaherbergi: Rúmgott með fallegum nýjum skáp. Útgengt út á svalir sem snúa út í garð.
Geymsla: Í kjallara, 6 fm.

Bílskúr: 22,8 fm, endabílskúr í bílskúrslengju. Gryfja í bílskúrnum, rafmagn, heitt og kalt vatn.

Gólfefni: Viðar plankaparket á öllum rýmum að undanskyldu baði og anddyri.

Lóð: Á lóðinni er 21 bílastæði auk stæða fyrir framan bílskúra. Stór sameiginlegur tyrfður bakgarður fyrir aftan hús.

Sameign: Vel um gengin og snyrtileg. Sameiginlegt þvottahús er í sameign í kjallara með þvottavél og þurrkara. Það er stórt þurrkherbergi við hliðina á þvottahúsinu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign hússins auk hitakompu og sorptunnurýmis.

Mjög falleg og standsett 4 herbergja íbúð í fallegu húsi í afar vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Hlíðunum í Reykjavík. Öll helsta þjónusta og verslun innan seilingar, skólar á öllum stigum í nágrenni ásamt göngufjarlægð í útivistar og náttúruperlurnar Klambratún, Öskjuhlíð og Nauthólsvík.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur hreidar@fastm.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Fasteignamiðlun

Fasteignamiðlun

Grandagarði 5, 101 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. feb. 2020
52.650.000 kr.
51.500.000 kr.
138.4 m²
372.110 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignamiðlun

Fasteignamiðlun

Grandagarði 5, 101 Reykjavík