Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 82,5 m2 4ra herbergja endaíbúð á 4.hæð (efstu hæð) í lyftuhúsi við Gerplustræti 11 í Mosfellsbæ, ásamt bílastæði í bílageymslu. Svalir í suðausturátt með fallegu útsýni. Frábær staðsetning rétt við Helgafellsskóla. Stutt í strætóstoppistöð. Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi/þvottaherbergi, forstofu, eldhús og stofu. Bílastæði merkt B07 í bílageymslu. Búið er að setja hleðslustöð.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús er með L-laga innréttingu og parketi á gólfi. Í innréttingu er ofn, helluborð, innbyggð uppþvottavél, vaskur og vifta. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.
Stofa/Borðstofa er með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í suðausturátt með fallegur útsýni.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi/Þvottaherbergi er með flísum á gólfi. Á baði er sturta, vegghengt salerni, handklæðaofn og innrétting með skolvask. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og þurrkara í innréttingu. Gluggi er á baðherbergi.
Bílastæði í bílageymslu er merkt B07 og er búið er setja upp hleðslustöðvakerfi í bílakjallara.
Vagna- og hjólageymsla er í sameign á jarðhæð.
Verð kr. 73.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.