Lýsing
Miklaborg kynnir: Glæsilegt fimm hæða fjölbýlishús með fjölbreyttu úrvali íbúða á góðum stað í hinu nýja Hamrahverfi í Hafnarfirði. Stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu. Greið samgönguleið er til og frá svæðinu um nýja Ásvallabraut. Margar íbúðir í boði sem falla undir hlutdeildarlán HMS.
***Bókaðu einkaskoðun hjá sölumönnum***
Íbúð 304- 115,9 fm fjögurra herbergja íbúð á þriðju hæð með sérmerktu stæði í bílakjallara.
Forstofa með fataskáp. Eldhús með eyju, falleg innrétting frá Ormson og tæki frá AEG. Stofa með gluggum til norður og vestur með útgengi út á svalir í vestur. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, þvottaaðstaða er inni á baðherbergi. Svefnherbergin eru þrjú, öll með fataskápum. Eigninni fylgir 12,6 fm geymsla og stæði B32 í bílakjallara.
Kaupendur greiða skipulagsgjald 0,3% af væntanlegu brunabótarmati. Áætluð afhending er í júlí/ágúst 2024.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu verkefnisins
Dverghamrar ehf hafa yfir 30 ára reynslu á byggingarmarkaði. Byggingastjórar fyrirtækisins starfa eftir vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem lögð er rík áhersla á fagleg vinnubrögð. Framkvæmdar eru reglulegar úttektir á verkþáttum framkvæmdarinnar þar sem tryggt er að unnið sé í samræmi við verklýsingar og að skilað sé traustri og góðri vöru á réttum tíma.
Nánari upplýsingar veita
Stefán Jóhann Stefánsson aðst.m. fasteignasala sími 659-2634 eða stefan@miklaborg.is
Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali sími 691-2312 eða osa@miklaborg.is
Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali sími 697-9300 eða svan@miklaborg.is
Jórunn Skúladóttir löggiltur fasteignasali í sími 845-8958 eða jorunn@miklaborg.is