Lýsing
SÝNUM DAGLEGA.
Miklaborg kynnir:
Glæsilegt fjölbýlishús með 2ja til fimm herbergja íbúðum á frábærum stað í hinu nýja Hamrahverfi í Hafnarfirði.
- FLESTAR ÍBÚÐIR FALLA UNDIR HLUTDEILDARLÁN HMS.
- Sérmerkt bílastæði fylgir öllum íbúðum með möguleika á rafbílahleðslu við hvert stæði.
- Lóð húsanna er björt og opnast í suð-vestur. Nálægð við náttúru og skóla og er leikskóli er fyrirhugaður í nokkra metra fjarlægð.
- Ný Ásvallabraut veitir greiða samgönguleið til og frá svæðinu.
- Vandaðar Arens innréttingar og tæki frá Ormsson. Allar innréttingar og skápar ná upp í loft.
Íbúð 506 er 93,4 fm, þriggja herbergja íbúð á 5.hæð ásamt sérmerktu bílastæði í opnu bílastæðahúsi.
NÁNARI LÝSING:
Eignin skiptist í anddyri/hol með góðu skápaplássi. Inn af anddyri er á aðra hönd mjög rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum og svefnherbergi með skápum. Á vinstri hönd frá andyri er baðherbergi með sturtu og fallegri innréttingu. Þvottaaðstaða er inni á baðherbergi. Eldhús er með fallegri innréttingu og er opið inn í rúmgott alrými þar sem einnig eru stofa og borðstofa. Stórar svalir eru út af alrými. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði. Íbúðin afhendist fullbúin en án gólfefna. Vandaðar innréttingar frá Arens (sölu- og þjónustuaðili: Ormsson) .
ATH myndir úr sýningaríbúð í Hringhamri 21
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni: www.hringhamar21-25.is
SÝNUM DAGLEGA
Allar nánari upplýsingar gefa:
Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 6592634 eða stefan@miklaborg.is
Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali, í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is