Lýsing
Miklaborg kynnir til sölu bjarta og fallega 5 herbergja íbúð í lyftuhúsi við Valshlíð á Hlíðarenda.
Íbúðin er á 3. hæð, 122,5 fermetrar að stærð, með suðursvölum í nýlega lyftuhúsi ásamt stæði í lokaðri bílageymslu.
Komið er inn í anddyri með skápum.
Innaf gestasalerni er þvottaherbergi með skápum.
Baðherbergið er með speglaskáp, innréttingu við handlaugina, upphengt wc og aðgengilegum sturtuklefa.
Hjónaherbergi með fataskápum.
Tvö barnaherbergi með fataskápum.
Fjórða herbergið getur nýst sem vinnuherbergi eða sjónvarpsherbergi.
Útgengt er út á stórar suðursvalir frá stofu sem vísar inn í skjólgóðan sameiginlegan garð.
Eldhúsinnrétting er sérlega vönduð með innbyggðum ísskáp og uppvottavél.
Eldhúseyjan vísar inn í stofu og gert er ráð fyrir stólum í kring.
Bakaraofn í vinnuhæð.
Sérgeymsla er í kjallara með góðri lofthæð.
Sameiginlega hjólaageymsla er í sameign.
Sérmerkt stæði er í bílageymslu.
Gólfefni íbúðar: Flísar eru á baðherbergjum og í þvottaherbergi.
Parket á gangi, herbergjum, stofu og eldhúsi.
Nánari upplýsingar gefur Vala Georgsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 6950015, vala@miklaborg.is
Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasa í síma 6941401, vidar@miklborg.is