Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 1961
svg
183,4 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 21. maí 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Tómasarhagi 13, 107 Reykjavík. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 21. maí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Tómasarhagi 13, 183.4 fm 6. herbergja neðri sérhæð í þessari eftirsóttu götu í hjarta Vesturbæjarins.

Um er að ræða miðhæð í þríbýli með fallegu útsýni til suðurs, íbúðin er opin og vel skipulögð, eldhúsið opnast inní stofu og borðstofu.  4. svefnherbergi. Sér þvottahús í íbúð.
Þetta er mikið endurnýjuð eign teiknuð af Guðmundi Kr. Kristjánssyni arkitekt. Opin og vel skipulögð miðhæð. Gólfhiti er á allri hæðinni.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.

Húsið hefur verið tölvert endurnýjað á síðustu árum.
2006 - 2007 – Íbúðin tekin í gegn, rafmagn endurnýjað og nýjir tenglar, gólfhiti lagður í öll gólf (Tengi), gegnheilt vandað parket lagt á alla íbúðina og flísar á baðherbergi, þvottahús og forstofu og gestasalerni.
Ný vönduð eldhúsinnrétting frá ALNO og ný tæki frá Siemens og vaskur og salerni og vaskar frá Ísleifi Jónssyni.
 2008 – Gestasalerni endurnýjað með vönduðum tækjum, flísum og stórum speglum.
 2009 – Nýtt skólp, dren og lagnir, og snjóbræðsla og ný ganstétt lögð að húsi (ekki í tröppur).
 2010 – Handrið á öllum svölum hússins hækkuð í stíl húsins (sérsmíðað járn) og samkvæmt reglugerð.
 2011 -  Nýtt tvöfalt gler frá Samverk sett í alla glugga (íbúð og bílskúr) og skipt um tréverk utanhúss / gluggalista. Einnig ný gler í svalahandrið á öllum svölum.
 2011 – Múrviðgerðir á húsi og húsið málað.
 2017 – Urethan steypulími dælt í sprungur á útveggjum til austurs, meðal annars við plötuskil til að koma í veg fyrir leka.
 2019 – Allir gluggakarmar á húsinu málaðir.
 2020 – Útveggir hússins málaðir.
 2021  – Urethan dælt í sprungur á vegg og í stétt (stigapalli) við inngang á 1. og 2. hæð til að koma í veg fyrir leka í geymslum í sameign í kajllara. 
 2021 – Aðalsvalir í íbúðinni málaðar og lagfærðar, pallaefni frá Byko lagt á svalirnar og steinn og járn málað.
 2026 – Nýtt þak á hús (bárujárn, kantar og ventlar ) og nýjar þakrennur á allt húsið.
 2026 – Nýr dúkur settur á bílskúr.
 2026 – Securitas kerfi í íbúð yfirfarið og uppfært í snjallkerfi.

Nánari lýsing:
Anddyri: Flísalagt anddyri og inn af anddyri er nýlega endurnýjuð snyrting.
Eldhús: Stórt, bjart og opið eldhús sem var endurnýjað 2006, steinn á borðum. Mikið skápapláss, vönduð tæki, parket á gólfi.
Borðstofa: Borðstofan er opin inn í eldhús og stofu og tengir rýmin skemmtilega saman. Parket á gólfi og stór gluggi til austurs með góðu útsýni.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa og er útgengt út á góðar suðursvalir með útsýni. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi er með skápum, parket á gólfi og útgengt út á svalir.
Barnaherbergi eru 3. parket er á gólfum og skápar.
Baðherbergi: Mikið endurnýjað baðherbergi með baðkari með sturtu, flísum á gólfi og hluta af vegg, innrétting, upphengt salerni,
Þvottahús er við hliðina á baðherbergi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Tvær sérgeymslur í sameign, hitarými og sameiginleg þvotta og þurrkaðstaða. Útgengi er út í garð í gegnum sameign.
 
Bílskúr: Rúmgóður og inngengi er úr garðinum, auðvelt að útbúa stúdío eða vinnuaðstöðu.

Nánari upplýsingar veitir Kjartan Hallgeirsson, löggiltur fasteignasali, í síma 824-9093, tölvupóstur kjartan@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

img
Kjartan Hallgeirsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Eignamiðlun
Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
img

Kjartan Hallgeirsson

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík

Kjartan Hallgeirsson

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík