Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
fjölbýlishús

SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia Resort

953 Spánn - Costa Blanca

29.800.000 kr.

522.807 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F5002511

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
57 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTTAR 2JA HERB. ÍBÚÐIR Á JARÐHÆÐ MEÐ SÉR GARÐI OG STÆÐI Í BÍLAKJALLARA – GLÆSILEGT RESORT*
ÞESSAR ÍBÚÐIR SELJAST HRATT.
FYRSTU ÁFANGAR UPPSELDIR. NÝR ÁFANGI VAR AÐ KOMA Í SÖLU.

Vandaðar og fallegar 2ja herb. búðir (1 svefnh. + 1 baðh.). 
Frábær staðsetning Í hinu nýja og glæsilega 700.000 fm., SANTA ROSALIA LAKE AND LIFE RESORT.
Santa Rosalia stöðuvatnið er miðpunktur svæðisins og stærsta manngerða stöðuvatn í Evrópu, 16.000 fm. Þar er komin frábær aðstaða, sandströnd, eyja til að vaða út í, góð aðstaða fyrir vatnaíþróttir og ýmislegt fleira. Á svæðinu er einnig ævintýra golfvöllur, frisbígolfvöllur, göngu-, skokk og hjólaleiðir, picknick svæði, jogasvæði, leikvellir fyrir börnin og ótal margt fleira skemmtilegt. Við vatnið og golfvöllinn er glæsilegur strand- og golfklúbbur, með veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Einnig verður matvöruverslun á staðnum, en stutt er í litla bæi í kring með góðu úrvali af verslunum og veitingastöðum. Örstutt frá ströndinni og bátahöfninni (4 km. 15 mín. á hjóli) í Los Alcazares. Mar Menor golfvöllurinn er í göngufæri, en einnig eru fjölmargir fleiri golfvellir á svæðinu. Ca. 1 klst. akstur í suður frá Alicante flugvelli, 30 mín. akstur frá Corvera, nýja alþjóðlega flugvellinum í Murcia.

ALGJÖR NÝJUNG Á FASTEIGNAMARKAÐNUM Á SPÁNI. TILVALIÐ TÆKIFÆRI FYRIR FJÁRFESTA.


Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is. GSM 777 4277.

Nánari lýsing: 

Komið er inn í gott opið alrými þar sem er stofa, borðstofa og eldhús með útgengi út á verönd og sér garð í suðvestur.
Eitt svefnherbergi með góðum fataskápum og  baðherbergi. Úr svefnherbergi er útgengi út á veröndina.
Sérstæði í bílakjallara og geymsla.

Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Gólfhiti á baðherbergjum.
Glæsilegur sameiginlegur sundlaugargarður og auk þess aðgengi að hinni frábæru sameiginlegu aðstöðu í Santa Rosalia.

Hægt er að fá íbúðirnar fullbúnar húsgögnum og rafmagnstækjum gegn vægu aukagjaldi, þannig að ekkert er eftir nema að kaupa í matinn og flytja inn.

Örstutt göngufæri er að Santa Rosalia stöðuvatninu með frábærri sólbaðsaðstöðu, ströndum, og möguleika á ýmsum skemmtilegum vatnaíþróttum.
Ca. 15 mín. tekur að hjóla niður á á skemmtilegu göngugötuna í Los Alcazares, sem liggur niður á fallega sandströnd. Fjöldi verslana og veitingastaða eru þar á svæðinu. Meðfram ströndinni er margra kílómetra langt “promenade” sem býður upp á skemmtilega göngutúra. Glæsileg smábáta og snekkjuhöfn og fjölbreytt mannlíf. Fjölmargir vinsælir og skemmtilegir golfvellir eru í næsta nágrenni og hinn vinsæli Mar Menor er í göngufæri frá Santa Rosalia svæðinu.

Verð (gengi 1Evra=150ISK)
Íbúð á jarðhæð með 1 svefnh. + 1 baðh. og sér garði. Verð 199.000 Evrur (ISK 29.800.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.


Á sama stað er líka hægt að fá stærri íbúðir:
Íbúð með 2 svefnh. + 2 baðh.  Verð frá 245.000 Evrum (ISK 36.700.000) + 10% skattur og  kostn. við kaupin, ca. 13%.
Íbúð með 3 svefnh. + 2 baðh. Verð frá 275.000 Evrum (ISK 41.200.000) + 10% skattur og kostn. við kaupin, ca. 13%

Los Alcazares, sem er í næsta nágrenni, er ekta spænskur strandbær með fjölbreyttu bæjarlífi, útimarkaði og götuhátíðum og gefst hér einstakt tækifæri til að eignast vandaðaða eign með nútímaþægindum í sjarmerandi spænsku umhverfi. Skólar og heilbrigðisþjónusta í næsta nágrenni.
Los Alcazares stendur við Mar Menor, lítið innhaf frá Miðjarðarhafinu, og er þar mikil veðursæld. Að meðaltali eru þar um 305 sólardagar, 30 skýjaðir og 30 rigningardagar á ári.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: strönd, ný eign, sér garður, verönd, golf, sundlaugargarður, 
Svæði: Costa Calida, Los Alcazares, Santa Rosalia, Mar Menor,

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.