Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Katla Hanna Steed
Vista
fjölbýlishús

Hraunbær 103B

110 Reykjavík

83.900.000 kr.

737.258 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2504319

Fasteignamat

76.300.000 kr.

Brunabótamat

57.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2019
svg
113,8 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Lyfta
svg
Heldri borgarar

Lýsing

Miklaborg og Jórunn lgf kynna Hraunbær 103, íbúð 104, að stærð 113,8 fm á jarðhæð með afgirtum palli, í þessu eftirsótta húsi. Eign í rótgrónu hverfi í Árbæ fyrir íbúa 60 ára og eldri. Um er að ræða góða 3ja herbergja íbúð sem er stór glæsileg og með 2. baðherbergjum. Komið er inn í forstofu en þar eru góðir fataskápar. Forstofan er opin inn í alrýmið eldhús og stofur mjög bjartara með útgengi út á sérafnotarétt sem er afgirtur að stærð 17,3 fm . Hjónasvíta með baðherbergi og góðum fataskápum. Einnig er herbergi sem er rúmgott rúmlega 10 fm með góðum fataskápum. Rúmgott baðherbergi innaf forstofu með glugga og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.

Frábær staðsetning stutt í alla þjónustu. Þjónusta hjá Reyjavíkurborg fyrir eldri borgara í næsta húsi (Hraunbæ 103). Þar er boðið uppá félags- og tómstundastarf auk þess sem boðið er upp á hádegisverð og kaffiveitingar. Allt aðgengi gott. Ártúnið er rótgróið hverfi. Gott aðgengi til útivistar í Elliðaárdal.

Pantið einkaskoðun hjá Jórunni lgf í síma 845-8958 eða jorunn@miklaborg.is

Húsið: er byggt árið 2019, er steinsteypt og skiptist í kjallara og níu hæðir. Lóðarhafi og verktaki er Dverghamrar ehf. Alls 60 íbúðir sem skiptast í þrjú stighús og skilgreind með húsnúmerunum 103A, 103B og 103C. Í kjallara eru geymslur sem tilheyra hver sinni íbúðinni, einnig er í kjallara bílageymsla með 41 bílastæði, en það fylgir EKKI stæði með þessari íbúð. Aðalinngangur húsins er frá suðurhlið og svalir eru allar í sömu átt. Djúpgámar eru fyrir rusl og staðsettir við suðurhlið lóðar. Á lóð sunnanmegin við húsið eri 18 bílastæði í óskiptri sameign allra. Garður sunnanmegin við húsið.

Húsfélagið: Í húsinu er virkt húsfélag. Ekki eru fyrirhugaðar framkvæmdir eða yfirstandandi. Mánaðargjaldið er kr 24.589 og innfalið í því er hiti bæði í sameign og íbúð, rafmagn í sameign, þrif á sameign og allur almennur rekstrarkostnaður húsfélagssins.

Nánari lýsing á eigninni. Hraunbær 103B íbúð 104 Eignin er þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð stærð eignar 113,8m2 matshlutans 0104. Eigninni tilheyrir geymsla birt stærð 10,0 m2. Sameiginlegur inngangur að íbúð. Komið er inn í forstofu með skápum á hægri hönd er baðherbergi með þvottahúsi innaf. Úr forstofu er gengið inn í hol sem leiðir þig í allar vistaverur íbúðar. Baðherbergi með glugga, góðri snyrtiaðstöðu, sturta, innrétting með skápum undir handlaug og spegli fyrir ofan handlaug einnig er tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Gott aukaherbergi sem er opið og hefur verið nýtt sem sjónvarpsherbergi, hjónaherbergi með skápum og baðherbergi innaf. Á baði innaf hjónaherbergi er sturta og snyrting. Eldhús og stofa er eitt rými sem er mjög bjart með útgengt út á 17,4 fm sérafnotarétt sem er afgirtur. Eldhúsið er fallega innréttað með innréttingu frá Arens.

Um er að ræða einstaklega fallega og vel skipulagða íbúð í þessu vinsæla húsi fyrir íbúa +60 ára.

PANTIÐ EINKASKOÐUN

Allar nánari upplýsingar gefur Jórunn í síma 845-8958 eða jorunn@miklaborg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% fyrstu kaup / 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar eru mismunandi eftir lánastofnunum frá kr 30 - 81 þúsund. 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.

img
Jórunn Skúladóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Miklaborg fasteignasala
Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
img

Jórunn Skúladóttir

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík

Jórunn Skúladóttir

Lágmúli 4, 108 Reykjavík