Upplýsingar
Verðsaga
114,9 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Lyfta
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
HLUTDEILDARLÁN - Bókið skoðun - sýni samdægurs - Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali s. 899-8815, kari@eignamidlun.isSuðursvalir. Fullbúin íbúð með parketi, innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél.
Áshamar 10, íbúð 02-02 er 114,9 fm 4 herbergja íbúð í nýju glæsilegu lyftuhúsi á mjög góðum stað í Hafnarfirði. Suðursvalir. Fullbúin íbúð með parketi, innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél.
Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 114,9 fm, þar af er íbúðarrými 103,1 fm og sérgeymsla í kjallara hússins er 11,8 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í alrými, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Sérgeymsla í kjallara hússins fylgir íbúðinni. Íbúðinni fylgir stæði númer 06-B20 í opinni bílageymslu. Suðursvalir.
Eignamiðlun kynnir nýjar eignir við Áshamar 2-10 í glæsilegum fjölbýlishúsum í Svansvottuðu ferli í Hamranesi í Hafnarfirði. Í húsunum eru 140 íbúðir, allt frá tveggja herbergja til fjögurra herbergja íbúða. Íbúðirnar eru bjartar og nútímalegar með hagnýtu skipulagi. Glæsilegt hverfi í nágrenni við stórkostlega náttúru, Hvaleyrarvatn, Helgafell, Kleifarvatn o.fl.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit
Heimasíða verkefnisins
Nánari upplýsingar veitir Kári Sighvatsson í síma 899-8815 eða kari@eignamidlun.is
Nánari lýsing:
Íbúðirnar afhendast fullfrágengnar með öllum innréttingum og gólfefnum, flísar og vandað harðparket verður á gólfum.
Eldhúsinnrétting er frá Nobilia í Þýskalandi. Eldhúsinnrétting er fullbúin með blöndunartækjum og eldhústækjum þ.e. helluborði, viftu í innréttingu eða eyjuháfi yfir helluborði þar sem það á við, innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél og ofni. Eldhústæki eru frá AEG.
Baðherbergisgólf og sturturými eru flísalögð. Baðherbergisveggir eru spartlaðir og málaðir með rakaþolinni málningu á þeim veggjum sem ekki eru flísalagðir. Baðinnrétting er með neðri skáp, hvítri handlaug og efri skápum með spegli á hurðum og ljósi. Salerni er vegghengt með innbyggðum vatnskassa. Blöndunartæki á baði eru hitastýrð blöndunartæki og sturtustöng með utanáliggjandi blöndunartækjum. Lýsing er í lofti á baðherbergjum. Vandað harðparket er á alrýmum. Sjá nánar í skilalýsingu. Innréttingar í þessari íbúð eru: Dökk Concrete Terra
Allar stærðir í boði fyrir Hlutdeildarlán. Bókið skoðun hjá sölumanni Eignamiðlunar.
Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is
Þórarinn M Friðgeirsson í síma 899-1882 eða thorarinn@eignamidlun.is
Rögnvaldur Örn Jónsson í síma 660-3452 eða rognvaldur@eignamidlun.is
Kári Sighvatsson í síma 899-8815 eða kari@eignamidlun.is
Kaupendur greiða skipulagsgjald þ.e 0,3% af endanlegu brunabótamati þegar það verður innheimt.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. feb. 2024
75.300.000 kr.
74.000.000 kr.
114.9 m²
644.038 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024