Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Upplýsingar
svg
140 m²
svg
4 herb.
svg
3 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG EINBÝLISHÚS Á GOLFVELLI*

Falleg, rúmgóð og vel skipulögð  einbýlishús á tveimur hæðum í Vistabella, snyrtilegum, litlum bæ, ca. 40 mín akstur frá Alicante. Góð verönd út frá stofu, sérgarður þar sem hægt er að hafa einkasundlaug.   Um 15-20 mín akstur á La Zenia ströndina. Örstutt á hinn fallega Vistabella 18 holu golfvöll og auk þess fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, Las Ramblas, Villamartin, Campoamor og Las Colinas. Lokað svæði, tryggir aukið öryggi. Örstutt labb í verslanir og veitingastaði. Fallega gróið umhverfi með göngu-og hjólaleiðum.  Lokað svæði með öryggisgæslu 24/7. Húsið  er vel skipulagt með góðu alrými, þremur svefnherbergjum og þremur baðherbergjum. 


GOTT VERÐ
Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali,adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 OG
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur,   karl@spanareignir. GSM 777 4277


Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Gott eldhús, með góðri tengingu við stofu og borðstofu í rúmgóðu alrými. Svefnherbergi og baðherbergi. Útgengi út í garð.

Efri hæð: 
Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Aðgengi út á svalir frá báðum svefnherbergjum. 

Út frá stofunni er stór verönd og góður, lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar og grilla. Einkasundlaug. Kjörin aðstaða til að njóta útiveru í góðu veðri allt árið.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, algjöra útivistarparadís í rólegu og fallegu umhverfi, en örstutt frá stöðum sem gaman er að heimsækja. Ekta staður fyrir þá sem vilja njóta útiveru í góðu veðri allt árið, eða jafnvel flytja alfarið í sólarparadísina á Spáni.

Verð frá 349.000 Evrur + kostn. (ISK 52.300.000,  gengi 1E= 150 ISK)

Húsið er 109 fm.
verönd 31 fm.
samtals 140 fm.

Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum og rafmagnstækjum gegn aukagjaldi, þannig að allt verði tilbúið þegar flutt er inn.

Hagstæð fjármögnun í boði úr spænskum bönkum, sem auðveldar kaupin.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir allt að 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í allt að 13%.

Eiginleikar: ný eign, sér garður, einkasundlaug, golf, bílastæði,
Svæði: Costa Blanca, Vistabella,
 

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.