Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2018
67,5 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Sérinngangur
Lýsing
Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Dalsbraut 16, 260 Reykjanesbæ.
Um er að ræða fallega 3ja herbergja, 67,5 fm. íbúð á 2. hæð í tveggja hæða fjölbýlishúsi með sérinngangi.
Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, stofu og eldhúsi í opnu björtu rými, baðherbergi þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara og geymslu innan íbúðar sem hægt er að nýta sem auka herbergi. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á fyrstu hæð ásamt sérgeymslu.
Nánari lýsing:
Snyrtileg aðkoma er að húsinu, innkeyrsla og sérmerkt bílastæði eru malbikuð, stéttar steyptar. Húsið er klætt að utan með gleri og álklæðningu.
Anddyri: Anddyri er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús: Eldhús með fallegri dökkri innréttingu, góð heimilistæki, harðparket er á gólfi.
Stofa og borðstofa: Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með harðparketi á gólfi og útgengi gegnum rennihurð út á verönd.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru tvö með harðparketi á gólfi, góðir skápar í báðum.
Geymsla: Geymsla er í íbúðinni með flísum á gólfi, hægt að nýta sem aukaherbergi.
Baðherbergi: Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum, stór innrétting, upphengt salerni, sturta og góð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sérgeymsla er í sameign.
Hjóla og vagnageymslu í sameign.
Mjög falleg og björt íbúð. Frábær staðsetning, við hliðina á nýjum leikskóla og grunnskóla, þar verður einnig almennings sundlaug og íþróttahús. Samgöngur til og frá svæðinu eru auðveldar og stutt uppá Reykjanesbraut.
Íbúðin er merkt 203
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50 eða á netfanginu es@es.is og í síma 420-4050
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 70.000 með vsk, sbr. kauptilboð.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. ágú. 2022
29.100.000 kr.
42.000.000 kr.
67.5 m²
622.222 kr.
12. des. 2018
28.950.000 kr.
28.350.000 kr.
67.5 m²
420.000 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024