Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristín Sigurey Sigurðardóttir
Sigþór Reynir Björgvinsson
Vista
fjölbýlishús

Álfheimar í fjármögnunarferli 38

104 Reykjavík

75.900.000 kr.

587.461 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2021031

Fasteignamat

76.100.000 kr.

Brunabótamat

51.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1958
svg
129,2 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Fjölskylduvæna íbúð með mikla möguleika á þriðju hæð í snyrtilegu fjölbýli við Laugardalinn. Svefnherbergi eru rúmgóð, stórar stofur og suður svalir.
Möguleiki er á að bæta við herbergi innan íbúðar.

Lýsing eignar:

Komið er inn í parketlagða/flísalagða forstofu/hol. Innbyggður opinn fataskápur. 
Eldhús á vinstri hönd frá forstofu, korkur á gólfi, innrétting er upprunaleg, efri og neðri skápar og skúffur. Nettur eldhúskrókur. 
Búr innangengt frá eldhúsi, dúklagt gólf, einkar rúmgott með hillum og með glugga. Nýtt í dag fyrir þvottavél og þurrkara. Möguleiki er á að stækka eldhús þar sem búr er í dag.
Stofa/borðstofa eru samliggjandi parketlagt rými, gengið inn um tvöfalda tekkhurð með gleri, bjartar stofur og með stórum gluggum er vísa til suðurs og að nærumhverfi. Útgengi er út á suðursvalir frá borðstofu.
Möguleiki er á að bæta við auka herbergi þar sem er stofa í dag þar sem er aukahurð frá holi.

Svefnherbergi eru þrjú á gangi ásamt rúmgóðum innbyggðum skápum og baðherbergi með glugga í enda gangs.
Tvö svefnherbergi
hlið við hlið annað parketlagt með innbyggðum skáp og hitt með nýlegum hvítlökkuðum skáp og nýlegt parket á gólfi.
Hjónaherbergi á hægri hönd, korklagt gólf, einkar rúmgott og með innbyggðum skápum.
Baðherbergi flísalagt gólf og veggir, baðkar/sturta, salerni. Baðinnrétting með skápum og handlaug, spegill þar fyrir ofan og lýsing. 

Geymsla er í kjallara hússins ásamt sameiginlegu þvottahúsi, hjóla og vagnageymslu. 
Sameiginleg lóð og bílastæði við húseign.
Tvær fullbúnar rafhleðslustöðvar við húseign, búið er að leggja að rafmagn fyrir tvær til viðbótar. 

2023 Hús múrviðgert og málað, gluggar yfirfarnir og málaðir. 
2017 Skipt um járn á þaki. 2023 þétt meðfram túðum og yfirfarið.


Eign á vinsælum stað í Reykjavík þar sem skólar leikskólar verslun og almenn afþreying er í göngufæri.

Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 bjorgkristin@101.is og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 kristin@101.is
Bókið skoðun á bjorgkristin@101.is eða í síma 771-5501


Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 77.900,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 






 

img
Kristín Sigurey Sigurðardóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
101 Reykjavík fasteignasala
Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík
101 Reykjavík fasteignasala

101 Reykjavík fasteignasala

Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík
phone
img

Kristín Sigurey Sigurðardóttir

Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
17. nóv. 2020
50.650.000 kr.
51.000.000 kr.
129.2 m²
394.737 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
101 Reykjavík fasteignasala

101 Reykjavík fasteignasala

Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík
phone

Kristín Sigurey Sigurðardóttir

Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík