Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
hæð

SPÁNAREIGNIR-San Miguel de Salinas

953 Spánn - Costa Blanca

25.400.000 kr.

390.769 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F9991511

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
65 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR NÝTT Í SÖLU:
*FLOTTAR EFRI OG NEÐRI SÉR HÆÐIR Á FRÁBÆRU VERÐI*

Vel hannaðar og flottar 3ja  herb. íbúðir á góðum stað í San Miguel de Salinas, skemmtilegum spænskum bæ með sál og sjarma. Ca. 50 mín. akstur í suður frá Alicante flugvelli. Göngufæri í miðbæ San Miguel de Salinas, þar sem er að finna fjölbreytt úrval af verslunum og veitingastöðum. Fjölmargir góðir golfvellir á svæðinu; Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Las Colinas, Vistabella, La Finca og ótal fleiri. 

Allar upplýsingr veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is. GSM 777 4277.

LÝSING EIGNAR:

Hægt er að velja um efri hæð með verönd og stórri þakverönd, eða neðri hæð með sér garði. Allar eignir eru með aðgengi að fallegum sameiginlegum sundlaugargarði með tveimur sundlaugum og skemmtilegri leikaðstöðu fyrir börnin.
Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi, rúmgott og bjart alrými með stofu og borðstofu vel tengdu vel búnu eldhúsi.
Neðri hæðir eru með 12 fm. verönd og 32-38 fm. sér garði.
Efri hæðir eru með 13-29 fm. svölum 85 fm. þaksvölum.
Græn svæði sem bjóða upp á skemmtilega útiveru allt árið, enda skín sólin allt að 300 daga á ári.

Verð miðað við gengi 1Evra = 150ISK:
3ja herb. íbúðir, tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi:
Efri eða neðri hæð,  verð frá 169.900 Evrur  (25.400.000 ISK) + 10 % skattur og ca. 3% kostnaður við kaupin.


Á sama stað er líka hægt að velja 4ra herb. íbúðir, þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi.
Neðri hæðir eru með 27 fm. verönd og 59 - 68 fm. sér garði.
Efri hæðir eru með 29 fm. svalir og 91 fm. sér þaksvalir.
Verð frá 224.900 Evrur  (33.700.000 ISK) + 10% skattur og ca. 3% kostnaður við kaupin.

Eignirnar eru til afhendingar í september 2024 til janúar 2025.

Öll þjónusta í næsta nágrenni og auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin í ca. 15 mín. akstursleið og ströndin í ca. 20 mín. akstursleið frá San Miguel de Salinas.

Hér er um að ræða góðar eignir á frábærum og fjölskylduvænum stað á frábæru verði.  Góð kaup miðað við stærð, staðsetningu og frágang.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp ca. 13%.

Meira um SAN MIGUEL DE SALINAS:
San Miguel de Salinas er skemmtilegur spænskur bær í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Mil Palmeras, Campoamor, Cabo Roig, La Zenia, Torrevieja, La Mata, Guardamar o.fl.  Bærinn er umkringdur fallegri sveit þar sem augað lítur fallega sítrus- og möndlurækt og þjóðlendu garð Sierra Escalona rétt við þröskuldinn. Hægt er að ganga og hjóla marga kílómetra meðfram síkinu sem liggur rétt við bæinn.
 
Í San Miguel de Salinas er mikið úrval af skemmtilegum veitingastöðum, bæði spænskum og alþjóðlegum (tæplega 30 í miðbænum einum, sem þýðir að árlegur tapas-viðburður er mjög vinsæll!!). Ef þú ert að leita að áfangastað til að dvelja í fríum, eða stað til að búa á allt árið um kring, þá er San Miguel de Salinas frábær kostur þar sem í bænum hefur þú alla nauðsynlega þjónustu og  öll  þægindi (góðir grunn- og framhaldsskólar, bankar, heilsugæslustöð sem er opin allan sólarhringinn, apótek, góð aðstaða til íþrótta, td. sundlaug, fótbolta- og frjálsíþróttavöllur, tennisvellir, padelvellir, körfuboltavellir, petanca ofl.
Í bænum er líka skemmtileg  blanda af spænskum og alþjóðlegum nágrönnum.
 
Stemmingin er þægileg og afslappandi og verð á börum og veitingastöðum hafa tilhneigingu til að vera lægri en á ströndinni, td. glas af góðu rauðvíni beint úr tunnunni. Vikulegur miðvikudagsmarkaður er frábært tækifæri til að birgja sig upp af staðbundnum ferskum ávöxtum og grænmeti, skinkum, ostum, ólífum, fötum og skóm o.s.frv., áður en þú færð þér drykk og tapas í einni af vinalegu tavernunum í bænum!
 
Það er góð  leigubílaþjónusta á staðnum og almenningsvagnar ganga nokkrum sinnum á dag til Torrevieja, Orihuela og Murcia.
Alicante og Murcia flugvöllur eru báðir í um 40-50 mínútna akstursfjarlægð. Netfyrirtækið á staðnum býður upp á áreiðanlegar, háhraða (ljósleiðara) nettengingar, sem auðveldar fólki að vinna í fjarvinnu.
San Miguel er staður þar sem þú nýtur hefðbundins  spænsks lífstíls og menningar, án þess að fórna þægindum af fyrsta flokks aðstöðu og umhverfi.
San Miguel de Salinas er sérlega vinalegur bær sem við vitum að þú munt elska!



Eiginleikar: ný eign, sér garður, þakverönd, sameiginleg sundlaug, air con, bílastæði,
Svæði: Costa blanca, San Miguel de Salinas,
 



 

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.