Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Diðrik Stefánsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Vista
svg

63

svg

56  Skoðendur

svg

Skráð  3. maí. 2024

fjölbýlishús

Sunnusmári 13 702

201 Kópavogur

79.900.000 kr.

839.286 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2520832

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2023
svg
95,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Bókið skoðun hjá:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS


LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti nýjan áfanga í sölu við Sunnusmára 9 - 13 í Kópavogi. 69 nýjar og glæsilegar íbúðir í vönduðu fjölbýlishúsi. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 5 herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði með flestum íbúðum. Innangengt er úr bílakjallara í lyftu- og stigahús. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt séreignageymslu í kjallara. Öll eldhústæki fylgja og er kæliskápur með frysti og uppþvottavél innbyggð í innréttingu.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klætt álklæðningu sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini. Fallegur sameiginlegur garður til suðvesturs sem verður fullfrágenginn.

Íbúð 702: Er glæsileg 3ja herbergja íbúð. Heildarstærð er 95,2 fermetrar og er staðsett á sjöundu hæð hússins. Íbúðinni fylgir 12,2 fermetra geymsla. Svalir eru 6,9 fermetrar að stærð til suðvesturs. Afhending er áætluð í desember 2023 - janúar 2024 en þó með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið. Nánari lýsing hér neðar.

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins. Skoðaðu með að smella hérna: Sölusíða - Sunnusmári 9-13

BÓKIÐ SKOÐUN!
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS
Guðmundur Hallgrímsson í síma: 898-5115 / GUDMUNDUR@FASTLIND.IS
Hrafnkell P. H. Pálmason í síma: 690-8236 / HRAFNKELL@FASTLIND.IS


Nánari lýsing:
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús í alrými með stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Útgengt á 6,9 fermetra svalir til suðvesturs úr stofu. 


Anddyri: Með fataskápum frá GKS.
Svefnherbergi: Eru tvö talsins með fataskápum frá GKS.
Stofa: Rúmar setustofu/borðstofu. Opin við eldhús.
Svalir: Til suðvesturs sem eru 6,9 fermetrar að stærð.
Eldhús: Með eldhúsinnréttingu frá Nobilia (GKS) og öllum eldhústækjum (Blástursofn, spansuðuhelluborð, innbyggð uppþvottavél, vifta og innbyggður kæliskápur með frysti).
Baðherbergi: Með fallegum flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili. Innrétting við vask, speglaskápur, upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél/þurrkara og útloftun.
Sérbílastæði: Í lokuðum bílakjallara.

Sunnusmári er nýtt hverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir, skóla og leikskóla. Sunnusmári er frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í íbúðarhverfi þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni.

ÞG Verk hafa yfir 20 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 

Innréttingar: Í eldhúsum og baðherbergjum eru frá þýska framleiðandanum Nobilia (flutt inn af GKS) og fataskápar frá GKS smíðaverkstæði. Eldhúsinnréttingar eru mismunandi útfærðar eftir íbúðum. Ýmist með dökkri viðarárferð (hnota frá GKS) en svörtum efri skápum eða með ljósum innréttingum. Fataskápar eru hvítir. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á böðum. 

Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki. Íbúðum er skilað með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu eða lofthengdum eyjuháfi þar sem það á við.

Hreinlætistæki: Salernisskál er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.

Aðalhönnuður: Er teiknistofan ARKIS ehf. Hanna verkfræðistofa ehf. sér um hönnun burðarvirkis, Teknis ehf. um hönnun lagna og Lumex um raflagnahönnun.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Hafðu samband til þess að fá nánari skilalýsingu. 

img
Heimir Hallgrímsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur