Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
einbýlishús

Hjarðarlundur 5

600 Akureyri

111.900.000 kr.

575.914 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2147580

Fasteignamat

92.100.000 kr.

Brunabótamat

89.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1975
svg
194,3 m²
svg
5 herb.
svg
3 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

4ra herbergja einbýli á einni hæð með bílskúr við Hjarðarlund 5 á Akureyri - samtals 194,3 m² að stærð.

Húsið skiptist í forstofu, sjónvarpshol, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi (sem voru áður 4), tvö baðherbergi og eitt salerni, þvottahús, búr, millibyggingu og bílskúr.


Forstofan er með flísum á gólfi og spónlagðri eikar innréttingu.
Stofan og sjónvarpshol eru með nýlegu parketi á gólfi og úr stofu er útgangur á sólpall til suðurs.  Einnig er útgangur á sólpallinn af svefnherbergisgangi.
Í eldhúsi er nýleg sérsmíðuð spónlögð eikarinnrétting með flísum á gólfi og granít bekkplötu og granít flísum á milli skápa.
Baðherbergi eru tvö auk salernis.  Aðalbaðherbergið hefur verið tekið í gegn, flísalagt í hólf og hólf, spónlögð eikarinnrétting, sturta með gleri, gólfhiti.  Annað baðherbergi er innaf bílskúr og þar er sturtuklefi.  Salerni er við þvottahús.
Svefnherbergin eru þrjú, en voru áður fjögur þar sem opnað var á milli tveggja herbergja - auðvelt að breyta aftur.   Parket er á gólfum allra herbergja og í tveimur þeirra eru fataskápar.  
Þvottahús er með flísum á gólfi og þar er sérsmíðuð spónlögð eikarinnrétting með vaska.
Búrgeymsla er við þvottahús og þar er lítil innrétting og hillur.
Milligangur/bygging er á milli húss og bílskúrs.  Þar eru flísar á gólfum og hurðar út bæði til norður og suðurs.
Bílskúrinn er flísalagður með ljósri innréttingu og ágætri vinnuaðstöðu.  Baðherbergi er innst í bílskúr, en hann var áður notaður sem íbúðarými.  Rafknúinn hurðaropnari, heitt og kalt vatn.
Lóðin er snyrtileg.  Sunnan og vestan við hús er sólpallur sem er 54 m² stærð.  Framan við húsið er rúmgott bílaplan og norðan við húsið er geymsluskúr á lóð.

Annað:
- Þak var endurnýjað árið 2003
- Raflagnir og tenglar hefur verið endurnýjað.
- Skipt hefur verið um allt gler í húsinu og báðar hurðar út á sólpallinn eru nýlegar.
- Allar innréttingar í húsinu sem og gólfefni og innihurðar hefur verið endurnýjað síðan 2008.

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone