Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Diðrik Stefánsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Vista
svg

123

svg

102  Skoðendur

svg

Skráð  21. júl. 2024

fjölbýlishús

Jöfursbás 5

112 Reykjavík

59.900.000 kr.

959.936 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2530371

Fasteignamat

23.200.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
62,4 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

NÝJAR ÍBÚÐIR VIÐ HAFIÐ - Sýni samdægurs. Bókaðu skoðun í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir Jöfursbás 5c, Reykjavík -- íbúð 0102.  2ja herbergja íbúð íbúð 62,4 m2 á fyrstu hæð, þar af geymsla 6,3 m2 (merkt 0002).  Íbúðin er skemmtilega hönnuð með stofu, eldhúsi, baðherbergi og  svefnherbergi.  Gólfhiti í allri íbúðinni og gólfsíðir gluggar. Sér-afnotareitur til suðurs út frá stofu.   Íbúðin er með aukinni lofthæð allt að 280cm.


Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Flísar á votrýmum og vandað parket á aðalflötum íbúðar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.

* sjávarútsýni
* aukin lofthæð 
* sérsmíðaðar innréttingar sem ná upp í loft.
* vönduð gólfefni
* gólfhiti
* gólfsíðir gluggar
* quartz steinn á borðum og undirlímdir vaskar
* snjóbræðslukerfi í göngustígum með fallegri næturlýsingu 
* spennandi umhverfisskipulag í nýju hverfi


Nánari lýsing íbúðar
Forstofa 
með innbyggðum fataskáp sem nær til lofts.
Eldhús með góðu skápaplássi og nær innrétting til lofts.  Innrétting er vönduð með Quartz stein á borðplötum
Stofa með góðum gólsíiðum glugga og útgeng á sér-afnotaflöt. 
Baðherbergi flísalagt 60x60cm ljósgráum flísum frá EBSON bæði gólf og hluti veggja, með vandaðri innréttingu með Quartz stein á baðinnréttingu frá Technistone.  Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði. 
Svefnherbergi með vönduðum fataskáp sem nær til lofts.   Geymsla merkt íbúðinni í kjallara

Stæði í vönduðu lokuðu bílahúsi fylgir íbúðinni
Hjóla- og vagnageymsla í sameign
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar



Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.
Leiðakerfi strætó tengist Gufunesi. 
Allar upplýsingar á: www.gufunesid.is 


Íbúðirnar í húsinu eru samtals 25 talsins, mjög fjölbreyttar 2-5 herbergja. Stærðir frá 60,0 fm-137,2 m2  Næg stæði fyrir utan hús

// VILDARKORT LINDAR //
Við vekjum sérstaka athygli á því að allir kaupendur hjá Lind fasteignasölu fá Vildarkort Lindar sem veitir 30% afslátt hjá samstarfsaðilum okkar, en þeir eru:
Parki (gólfefni), Z brautir og gluggatjöld, Húsgagnahöllin, Betra bak, Dorma, Flügger litir, S. Helgason steinsmiðja, Vídd og Húsasmiðjan.


Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
 
Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni.
 
Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki.  Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan. 

Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 

Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone