Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heimir Hafsteinn Eðvarðsson
Björgvin Þór Rúnarsson
Haukur Halldórsson
Upplýsingar
svg
Byggt 2024
svg
138,3 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Björgvin Þór Rúnarsson lgf og Hrönn Ingólfsdóttir lgf s:692-3344 kynna eignina Þórðarbraut 2, nánar tiltekið eign mert 0101, fastanúmer 2501709 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Einstakt tækifæri til þess að eignast stórglæsilegt sumarhús á frábærum útsýnisstað húsið er laust til afhendingar við kaupsamning.
Húsið stendur við Þórðarbraut 2 sem er í jarði frístundabyggðar í Landi Torfastaða. 


Stórglæsileg nýbygging fullbúið sumarhús á einni hæð á einstökum útsýnisstað í landi Bláskógabyggðar. Frábært útsýni er til flestra átta og afar friðsælt og stutt í allar helstu náttúruperlur.
Húsið stendur við Þórðarbraut 2 sem er í jarði frístundabyggðar í Landi Torfastaða í Biskupstungum. 
Stutt í Friðheima, golfvöllinn á Flúðum og góða veitingastaði, svo eitthvað sé nefnt.
Þetta er staður og hús fyrir þá sem vilja vera út af fyrir sig með villta og fjölbreytta náttúru allt í kring, ásamt mikilli fjallasýn. Sumarhúsið er á 5.355 m2 eignarlóð. 

Húsið er skráð 125,1 fm og svo er gestahús eða tómstundahús um 13,2 fm að auki. Húsið er að mestu klætt Lunawood frá Byko, áltré gluggar eru í húsinu frá Byko. Í stofu er rennihurð á verönd. Hitaveita og gólfhiti er í öllu húsinu. Vandað rafkerfi. Um 160 fm verönd er við húsið. Vandaðar innréttingar eru og gólfefni.
Komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu. Gesta snyrting er flísalögð.
Eldhús, stofa eru í stóru alrýmu, upptekin loft, falleg eyja og með vönduðum tækjum. 
Rennihurð úr stofu á stóra verönd. Á herbergjagangi eru 3 herbergi.
Baðherbergi er flísalagt, sturta innrétting, hurð er af baði út á verönd þar sem gert er ráð fyrir heitum potti. Þvottahús er flísalagt, innrétting.
Við húsið er 13,2 fm hús, parket er á gólfi. Tæki í eldhúsi og þvottahúsi fylgja ásamt ljósum.
Hljóðvistardúkur er í herbergjum og á herbergja gangi.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
 
Með kveðju.
Hrönn Ingólfsdóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali.
hronn@fasteignaland.is
00354-6923344

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

 

img
Björgvin Þór Rúnarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignaland ehf
Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
img

Björgvin Þór Rúnarsson

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.

Björgvin Þór Rúnarsson

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.