Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Elín Viðarsdóttir
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Álfaborgir 15

112 Reykjavík

64.900.000 kr.

749.423 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2233217

Fasteignamat

59.450.000 kr.

Brunabótamat

40.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1997
svg
86,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

ATH eignin er seld með fyrirvara um sölu á annari eign, og liggur það ljóst fyrir eigi síðar en 12. ágúst nk.

NÝTT Í SÖLU, NÝTT Í SÖLU, ÁLFABORGIR 15, VEL SKIPULÖGÐ 4RA HERB. 86,6 FM ÍBÚÐ Á EFSTU HÆÐ, MEÐ SÉRINNGANGI AF SVÖLUM, ÍBÚÐIN ER ENDAÍBÚÐ Á EFSTU HÆÐ, ÍBÚÐIN ER SKRÁÐ 3JA HERB. EN ÚTBÚIÐ HEFUR VERIÐ HERB. ÚR HLUTA AF STOFU, AUÐVELLT ER AÐ BREYTA ÞVÍ TIL BAKA. SÓLRÍKAR SUÐUR SVALIR, ÖRSTUTT Í SKÓLA,  LEIKSKÓLA OG SPÖNGINA. BARVÆNT HVERFI, SÉR BÍLASTÆÐI FYRIR UTAN.


Valhöll fasteignasala og Heiðar Friðjónsson lögg. fast, s. 693-3356, heidar@valholl.is,  kynnir fallega og skemmtilega vel skipulagða 86,6 fm, 3ja til 4ra-herbergja útsýnis og enda-íbúð á frábærum stað við Álfaborgir 15 í Borgarhverfi Grafarvogs.
ATH opið hús er á eigninni miðvikudaginn 3. júlí frá kl. 17.30 til 18.00. Heiðar verður á staðnum og sýnir áhugasömum, s.693-3356, eða heidar@valholl.is

Skipulag:Opið stigahús, gengið  inn í enda-íbúð sem er á efstu hæð til vinstri.  Komið er inn í flísalagða forstofu, með skáp og opnu hengi, í enda anddyrisins eru rennihurðir og þar er lítil geymsla / fathengi. Eldhús með ljósri innréttingu og góðum borðkrók, þaðan er sérstaklega fallegt útsýni til norðurs. Parket á gólfi.  Stofan er rúmgóð með parketi á gólfi, en hefur verið minnkuð með aflokun á 3ja herberginu, það var þó sett þannig upp að auðvelt er að taka það niður. Úr stofu er útgengi út á sólríkar suður svalir. Tvö önnur herbergi, bæði með skáp og parketi á gólfum.  Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta veggja, baðkar með sturtu í, innrétting og lagt fyrir þvottarvél á baði sem er með glugga. Í kjallara er sameiginleg hjóla og vagnageymsla en inn af henni er sér geymsla sem 3,3 fm. Fyrir utan er búið að útbúa litla geymslu sem er dekkjageymsla fyrir íbúana.

Húsið sjálft virðist í mjög góðu ástandi og að sögn seljanda er nýlega búið að skipta um glugga á suður og austurhlið íbúðarinnar, nýlega búið að mála og viðgera húsið og fyrir nokkrum árum voru stigapallar flotaðir.
Um er að ræða íbúð á mjög svo barnvænum stað, nokkrir metrar eru í Borgarskóla og Leikskólann Hulduheima. Stutt er í Spöngina, aðal verslunarmiðstöð Grafarvogs og ekki mjög langt í Egilshöll.

Þetta er í heild sinni falleg og skemmtileg íbúð með þremur svefnherbergjum(með breytingum) á efstu hæð, (tvær hæðir upp) og frábæru útsýni, allar uppl. um eignina veitir Heiðar Friðjónsson í s:693-3356 eða á heidar@valholl.is
 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

img
Heiðar Friðjónsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valhöll fasteignasala
Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
img

Heiðar Friðjónsson

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone

Heiðar Friðjónsson

Síðumúla 27, 108 Reykjavík