Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Stefán Bjarki Ólafsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1979
svg
201,8 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing

DOMUSNOVA, INGUNN BJÖRG OG VERA KYNNA

GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS Á EINNI FALLEGUSTU ÚTSÝNIS OG EIGNARLÓÐ MOSFELLSBÆJAR LÓÐIN ER MJÖG STÓR EÐA RÉTT TÆPIR 1600 M2 SEM BÝÐUR UPP Á MJÖG MIKLA MÖGULEIKA.  EINSTAKLEGA FALLEGT OG VÍÐÁTTUMIKIРÚTSÝNI M.A TIL FJALLA OG SJÁVAR.  STAÐSETNINGIN ER EINSTÖK HÚSIÐ STENDUR MJÖG PRÍVAT ÞAÐ ER SÉR HEIMREIÐ AÐ HÚSINU OG MJÖG STÓRT BÍLAPLAN SEM RÚMAR ALLAVEGA 8 BÍLA. 

Samkvæmt HMS er eignin er skráð 202,2 m2,  þar af er íbúðarrými 157,3 m2 og bílskúr 44,5 m2 . Bílaplan er um 225 fm. Eignin skiptist á eftirfarandi hátt: Fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, sjónvarpsrými, samliggjandi eldhús, borðstofa og stofa, þvottahús, forstofa, mjög rúmgóður bílskúr. 
 
VINSAMLEGA BÓKIÐ SKOÐUN Á vera@domusnova.is eða í síma 8661110 eða
ingunn@domusnova.is eða í síma 856 3566.


Að sögn seljenda voru efirfarandi framkvæmdir  gerðar af þeim árið 2021 - 2022:
  • Lagnir endurnýjaðar að mestu. Lagðar nýjar lagnir í alrými allt að eldhúsi, þvottahúsi og minna baðherbergi, settur upp varmaskiptir, nýjar síur, nýtt stýrikerfi fyrir gólfhita. Gert ráð fyrir gasskút utanhúss. Lagnir fyrir það til staðar. 
  • Rafmagn dregið í nýtt að hluta, skipt um alla rofa og tengla. Efni frá S Helgasyni. Nettengingu bætt við í
  • öll svefnherbergi og stofu.
  • Gólf. Öll gólf flotuð nema á stærra baðherbergi. 
  • Bílskúr, epoxy lagt á gólf. 
  • Að sögn fyrri eigenda var skipt um gler í öllum gluggum árið 2021.  
  • Breytingar voru gerðar á skipulagi í stofu/eldhúsi, þvottahúsi og forstofu sem ekki eru inn á samþykktum teikningum.
Nánari upplýsingar veita: 
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Vera Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali / s.866 1110 / vera@domusnova.is


Nánari lýsing:
Forstofa : Flotað gólf, og walk inn fataskápur.
Stofa/ borðstofa/ eldhús: Bjart og opið rými með aukinni lofthæð, stórir gluggar á þrjá vegu, stórfenglegt útsýni. Eldhús með hvítri innréttingu frá Alno og góðum háskáp. Flotuð borðplata með epoxy yfirborði. Nýleg Siemens tæki, innbyggð uppþvottavél, sorpkvörn í vaski. Nýlegur vaskur og blöndunartæki með útdraganlegum barka. 
Baðherbergi 1 / Þvottahús:  Flotað gólf, Innrétting útbúin úr gömlu saumavélarborði, upphengt salerni. Inn af þessu rými er þvottahús þar er nýleg sturta með innbyggðum blöndunartækjum, handklæðaofn, aðstaða fyrir þvottavélar í vinnuhæð. Hurð út í garð. Epoxy í sturtu og á þvottahúsgólfi. 
Sjónvarpsrými: Flotað gólf, gluggi. 
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart, flotuð gólf. Fataslá með kommóðum undir. 
Barnaherbergi 1: Rúmgóðir fataskápar, flotað gólf. 
Barnaherbergi 2: Rúmgott, flotað gólf. 
Barnaherbergi 3: Rúmgott, flotað gólf. 
Baðherbergi: 2  Flísalagt gólf ásamt veggjum að hluta. Rúmgóð innrétting, hornbaðkar, walk inn sturta, handklæðaofn, upphengt salerni. Hiti í gólfi.
Geymsluloft: Gott geymsluloft er yfir baðherbergi 1. Þá er einnig loft yfir svefnherbergis álmunni sem er í dag bara nýtt undir lagna leið. Gott aðgengi að lögnum. 
Bílskúr: Rúmgóður 44,5 m2 með gluggum á tvo vegu, hurð ásamt tveimur innkeyrsluhurðum, nýlegt epoxy á gólfi, heitt og kalt vatn. Stórt bílaplan sem rúmar vel 8 bíla. Hitalögn í plani að hluta, á gönguleiðum. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
  • Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone
    Ár
    Fasteignamat
    Kaupverð
    Stærð
    Fermetraverð
    17. des. 2021
    71.950.000 kr.
    109.000.000 kr.
    201.8 m²
    540.139 kr.
    16. sep. 2019
    62.250.000 kr.
    79.500.000 kr.
    201.8 m²
    393.954 kr.
    3. jún. 2011
    36.500.000 kr.
    39.000.000 kr.
    201.8 m²
    193.261 kr.
    Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone