Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
einbýlishús

SPÁNAREIGNIR - Daya Nueva

953 Spánn - Costa Blanca

41.400.000 kr.

426.804 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F9872711

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
97 m²
svg
4 herb.
svg
3 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

SPÁNAREIGNIR - Daya Nueva
*SÉRBÝLI Í EKTA SPÆNSKUM BÆ STUTT FRÁ ALICANTE*-*FRÁBÆRT VERÐ*


Falleg, rúmgóð og vel skipulögð  sérbýli á tveimur hæðum í Daya Nueva, fallegum spænskum bæ. Góð verönd út frá stofu, sérgarður með einkasundlaug. Um 30 mín akstur frá Alicante, 10-20 mín akstur niður á ströndina í Guardamar eða La Marina. Fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni. Örstutt labb á lokal veitingastaði í bænum, en stutt í stærri bæi eins og Almoradi (4km), Guardamar (15km), Rojales (6km) og Torrevieja (20km). Fallega gróið umhverfi með göngu-og hjólaleiðum.  Húsið  er vel skipulagt með góðu alrými, þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum ásamt gestasnyrtingu. 

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali,adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 OG
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur,   karl@spanareignir. GSM 777 4277


Nánari lýsing:
Neðri hæð: gott eldhús, með góðri tengingu við stofu og borðstofu í rúmgóðu alrými ásamt svefnherbergi með sér baðherbergi og auk þess gestasnyrtingu.
Efri hæð: tvö svefnherbergi og eitt bað herbergi. Stórar svalir út frá öðru svefnherberginu.

Út frá stofunni er stór verönd og góður, lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar og grilla. Einkasundlaug. Kjörin aðstaða til að njóta útiveru í góðu veðri allt árið.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Stæði fyrir bíl inni á lokaðri lóð.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, algjöra útivistarparadís í rólegu og fallegu umhverfi, en örstutt frá stöðum sem gaman er að heimsækja. Ekta staður fyrir þá sem vilja njóta útiveru í góðu veðri allt árið, eða jafnvel flytja alfarið í sólarparadísina á Spáni.
Örstutt göngufæri í miðbæinn þar sem hægt er koma við hjá bakaranum og fá sér nýbakað brauð, eða kjötkaupmanninum og velja sér góða steik á grillið.
Fjölmargir góðir golfvellir á svæðinu. Skóli og íþróttaaðstaða.

FRÁBÆRT VERÐ, frá: 276.000 Evrur + kostn. (ISK 41.400.000 + kostn. miðað við gengi 1E=150ISK)
Afhending ca. mars - júní 2025.
Fyrri áfangi uppseldur. Nýr áfangi var að koma í sölu og því hægt að velja góð hús.

Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum og rafmagnstækjum gegn viðbótarkostnaði. þannig að allt verði tilbúið þegar flutt er inn.

Hagstæð fjármögnun í boði úr spænskum bönkum, sem auðveldar kaupin.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður. 
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: bílastæði, sér garður, einkasundlaug,
Svæði: Costa Blanca, Daya Nueva,

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.