Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Diðrik Stefánsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Vista
einbýlishús

Sunnuflöt 9

210 Garðabær

240.000.000 kr.

984.010 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2072387

Fasteignamat

143.050.000 kr.

Brunabótamat

97.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1966
svg
243,9 m²
svg
7 herb.
svg
3 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Albert Bjarni og Lind fasteignasala kynna glæsilegt og afar vel staðsett 243,9 fm tvílyft einbýli með innbyggðum 58,3 fermetra bílskúr, teiknað af Kjartani Sveinssyni við Sunnuflöt í Garðabæ. Frábær staðsetning upp á veðursæld og næði í einni af eftirsóttustu götum Garðabæjar.
Hægt að gera auka íbúð á neðri hæð, en einnig er möguleiki að stækka eignina þar sem óútgrafið rými er eða bæta við húsið um 100fm með viðbyggingu. Eignin var endurnýjuð að innan árið 2004 á smekklegan og vandaðan máta.  Meðal annars voru baðherbergi, eldhús, gólfefni endurnýjuð, ásamt lögnum og rafmagni.
Nánari lýsing eignar: komið er inn í anddyri með fataskápum. Hol/gangur en þar er fallegur stigi milli hæða. Gestasnyrting með granít borðplötu og vönduðum tækjum. Bjartar fallegar samliggjandi stofur með fallegum arinn og útsýni til suðurs að auki er útgangur á stóra suður/vestur verönd með grillskýli og geymsluskúr. Eldhús sem er opið inn í hol og borðstofu, falleg hvít innrétting með granítborðplötum og vönduðum tækjum, gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp. Úr eldhúsi er útgengi á verönd til norðurs með steyptum flísalögðum nuddpotti og útisturtu. Tvö svefnherbergi er á efri hæð ásamt hjónasvítu með góðum fataskápum og sér baðherbergi með gólfhita, baðkari og flísalagðri sturtu með glerhurð, innrétting með graníti á borðum og tveimur vöskum og fallegur spegill með lýsingu í yfir. Á neðri hæð er sér inngangur í forstofu með fatahengi þar sem er innangengt í bílskúr og íbúðarýmið. Baðherbergi með fallegri innréttingu með granítborðplötu, handklæðaofni og flísalagðri sturtu með glerhurð. Sjónvarpshol. Svefnherbergi með fataskáp.
Þvottaherbergi með innréttingum og eru tækin í vinnuhæð, vaskur og vinnuborð. Bílskúrinn er tvöfaldur með sjálfvirkum opnurum, gluggum og er geymsla inn af bílskúr. Góðar svalir til suðurs með svalahandriði úr öryggisgleri. Skipt var um flesta glugga 2022 með þreföldu sólvarnargleri frá Velfac.(suður/austur) Gert er ráð fyrir að fara í léttar múrviðgerðir og málun á næstu vikum og mun seljandi sjá um þá framkvæmd. Stór lóð eða 964,0 fermetrar að stærð, skjólsæl og býður upp á mikla möguleika. Hellulögð innkeyrsla og stéttir með hitalögnum undir, verandir með skjólveggjum og gróður. Geymsluskúrinn er 16fm með rafmagni.

Allar nánari upplýsingar veitir Albert Bjarni í síma 8210626 eða á netfanginu albert@fastlind.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignsala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900 kr.

img
Albert Bjarni Úlfarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Albert Bjarni Úlfarsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
3. ágú. 2018
81.500.000 kr.
118.000.000 kr.
243.9 m²
483.805 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Albert Bjarni Úlfarsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur