Upplýsingar
4515571,9 m²
8 herb.
3 baðherb.
6 svefnh.
Þvottahús
Lýsing
EIGNAVER 460-6060
Stafn 1 þingeyjarsveit.
Til sölu er jörðin Stafn 1 í Reykjadal, þingeyjarsveit. 451,1 hektara jörð, þar af 27 hektarar af ræktuðu landi, ásamt 239,2 fm. einbýlishúsi, 1.290,3 fm. af útihúsum og veiðihlunnindum í Reykjadalsá.
Jörðin er staðsett að vestanverðu í Reykjadal og er lögbýlið syðst byggðra jarða í dalnum. Á jörðinni í dag er rekið fjárbú.
Nánari lýsing:
Einbýlishúsið var upphaflega byggt árið 1938 og viðbygging síðar eða um 1965 og er samtals 239,2 fm. í dag. í húsinu eru mörg herbergi. Ágætar innréttingar og gólfefni eru á efri hæð hússins, en húseignin þarfnast lagfæringar sérstaklega eldri partur hússins. Gluggar og gler er lélegt.
Útihúsin:
1) Bogaskemma/geymsla, byggð árið 1950, hluta til moldargólf og nýtist að hluta til sem geymsla í dag.
2) Gott 113,5 fm. hesthús byggt árið 2003 sem tekur allt að 15 hesta. Básar, stíur og hnakkageymsla. Áfast hesthúsinu er mjög fín 82,1 fm. hlaða byggð árið 1952 með góðri "bílskúrshurð" sem sett var árið 2005. Gott aðgengi fyrir t.d. heyrúllur ofl.
3) Fjárhús. 432,0 fm. fjárhús með áburðarkjallara og getur tekið c.a. 400 ær. byggt árið 1978, gólfið endurnýjað árið 2014/2015. Áfast fjárhúsinu er 225 fm. hlaða byggð árið 1980. ( Búið er að hólfa niður í hlöðunni þannig að þar geta verið með allt að 100 kindur ) .
4) Refahús, nýtist í dag sem geymsla og að hluta til sem fjárhús, þegar þess er þörf.
Annað:
- Stafn 1 er í c.a. 6 kílómetra fjarlægð frá þjóðvegi eitt og í 10 mín akstursfjarlægt frá þéttbýliskjarnanum að Laugum. Mokstur á þessum vegi er á vegum vegagerðar og sveitafélagsins.
- c.a. 30 mín akstur til Húsavíkur og c.a. 40 mín til Akureyrar.
- Jörðinni fylgir 1% hlutur í Reykjadslaá og veiðifélagi sem á veiðihúsið og er áin ásamt veiðihúsinu í útleigu.
- Frábært tækifæri fyrir t.d. hestafólk með möguleika á fjárbúskap og ferðaþjónustu. Ljósleiðari
Jörðin er í einkasölu hjá Eignaveri og frekari upplýsingar veitir Arnar lfs.. í síma 460-6060 eða arnar@eignaver.is