Lýsing
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@fastm.is
Eignin skiptist í: Forstofu, baðherbergi, tværr stofur, eldhús, 5 svefnherbergi, þvottahús, geymslu og stórt fataherbergri/geymslu. Eignin Reykjavíkurvegur 27 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 207-8584, merkt merkt 01-01, birt stærð 154.7 fm.
Nánari Lýsing:
Aðalhæð: Forstofa - Hol - Baðherbergi - Stofa - Eldhús - Sjónvarpsstofa.
Forstofa: Upphengdir skápar. Flísar á gólfi.
Hol: Úr holi er gengið inní stofu aðalhæðar, baðherbergi og upp stiga í rishæð. Flísar á gólfi.
Baðherbergi: Uppgert árið 2017. Flísalagt í hólf og gólf. Þröskuldalaus opin sturta með innbyggðum sturtuhaus og blöndunartækjum. Upphengt klósett, hanklæðaofn ásamt baðinnréttingu með neðri skáp með vask ofan á og efri speglaskáp.
Stofa: Opin, björt og rúmgóð stofa samliggjandi eldhúsi. Gengið inní viðbygginguna sem var byggð árið 2002 sem er í dag nýtt sem sjónvarpsstofa.Á árunum 2021-2022 var upprunalegur panell afhjúpaður á veggjum og lofti ásamt því að milliveggur tekinn niður.
Eldhús: Endurnýjað og stækkað á árunum 2021 - 2022. Falleg dökk innrétting með bakaraofn í vinnuhæð. Mjög gott skápa- og vinnupláss. Viðarplata á eldhúsbekk. Aðstaða fyrir uppþvottavél. Gengið er niður í kjallara úr eldhúsi.
Sjónvarpsstofa: Er í viðbyggingunni sem reyst var árið 2002. Rúmgott rými sem er í dag nýtt sem sjónvarpsstofa.
Rishæð: 5 svefnherbergi:
Herbergjagangur: Gengið í öll 5 svefnherbergin úr gang. 4 minni herbergi og eitt rúmgott.
4 herbergi: Barnaherbergi. Einnig hægt að nýta sem skrifstofu eða fataherbergi. Einnig hægt að opna á milli herbergja, léttir veggir. Býður upp á fjölbreytta möguleika.
Hjónaherbergi: Rúmgott. Staðsett í viðbyggingunni byggt árið 2002.
Kjallari: Þvottahús, geymslur (fataherbergi) Lofthæð í kringum 190cm
Þvottahús: Í opna rýminu í kjallara. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymslur: Tvær rúmgóðar geymslur í kjallara.
Góð og vinsæl staðsetning í Hafnafirðinum með fjölbreytta verslun og þjónusta eru í stuttu göngufæri ásamt miðbæ Hafnafjarðar, Hellisgerði og Víðistaðatúni. Þá er stutt í frábært íþróttasvæði FH að Kaplakrika.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur hreidar@fasteignamidlun.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.