Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Jósep Grímsson
Rúnar Örn Rafnsson
Vista
fjölbýlishús

Frostafold 12

112 Reykjavík

63.800.000 kr.

742.724 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2041993

Fasteignamat

57.000.000 kr.

Brunabótamat

43.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1987
svg
85,9 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Eignin getur verið laus við kaupsamning.
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Frostafold.
 

Vel skipulögð þriggja herbergja íbúð með sér inngangi af svölum á annari hæð, í snyrtilegu lyftuhúsi á þessum vinsæla stað í Grafarvoginum.
Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi
Eldhúsið er  með vel með farinni innréttingu, fínni vinnuaðstöðu og góðu skápaplássi. Í eldhúsinu er  borðkrókur. Inn af eldhúsinu er þvottahús.
Baðherbergið er rúmgott með baðkari og ágætis innréttingu.
Tvö rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni, skápar eru í öðru herberginu.
Stofan er björt með útgengi út á stórar, skjólgóðar svalir með frábæru útsýni yfir borgina.
Sér geymsla í kjallara fylgir íbúðinni. Ásamt sameigninlegri hjóla og vagnageymslu og stórri sameiginlegri geymslu fyrir húsið.
Gólfefni íbúðarinnar eru parket og flísar.
Samkvæmt eigendum hefur verð farið í eftirfarandi framkvæmdir frá árinu 2021.
Nýtt teppi á stigagangi og lyfta yfirfarin. Að utan hefur húsið verið sprunguviðgert, múrað og málað. Skipt var um þakrennur, gluggar lagaðir þar sem þörf var á. Einnig voru svalir og svalagangar flotaðir og sílanbornir.
Þetta er  falleg, vel skipulögð eign á góðum stað í Grafarvogi þar sem stutt er í  þjónustu svo sem, skóla og leikskóla og verslun.


Vantar allar gerðir eigna á skrá. Persónuleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar gefur:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
josep@fastgraf.is

 

Fasteignasalan Grafarvogi

Hverafold 1-3, 2.hæð, 112 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. mar. 2019
32.300.000 kr.
37.000.000 kr.
79 m²
468.354 kr.
16. jún. 2015
20.100.000 kr.
26.000.000 kr.
79 m²
329.114 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Fasteignasalan Grafarvogi

Hverafold 1-3, 2.hæð, 112 Reykjavík
phone