Lýsing
Eignin er skráð samtals 70,7 m2 en þar af er geymslan skráð 2,8 m2.
Fasteignamat fyrir árið 2025 verður 51.450.000 kr.
Nánari lýsing:
Forstofa/gangur fataskápur/geymsla, geymslurými undir stiga við hliðina á forstofu.
Eldhús með snyrtilegri eldhúsinnrétting en hluti hennar hefur nýlega verið endurnýjaður, borðkrókur og korkflísar á gólfi. Úr eldhúsi er útgengt í sameiginlegt þvottahús og geymslur sem og í bakgarð eignarinnar.
Stofa rúmgóð með parketi á gólfi.
Baðherbergi með sturtu, snyrtileg innrétting, gluggi, handklæðaofn og flísalagt í hólf og gólf.
Hjónaherbergi er rúmgott, nýlegir fataskápar frá 2022 og parket á gólfi.
Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Geymsla með steingólfi.
Þvottahús er í sameign á hæðinni þar sem hver íbúð er með sitt tengi.
Allar nánari upplýsingar veitir Dana Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-1879 eða á netfanginu dana@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.