Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Jón Guðmundsson
Guðmundur Th Jónsson
Elín D. Guðmundsdóttir
Sigríður Kjartansdóttir
Vista
fjölbýlishús

Freyjugata 10A

101 Reykjavík

64.900.000 kr.

971.557 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2007232

Fasteignamat

58.800.000 kr.

Brunabótamat

30.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1920
svg
66,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur
Opið hús: 28. ágúst 2024 kl. 17:00 til 17:30

Ftreyjugata 10a - Mikið endurnýjuð 3ja herberrgja íbúð með sérinngangi - Opið hús miðvikudaginn 28. ágúst á milli kl. 17.00 og 17.30 - Verið velkomin

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu mjög fallega, bjarta og mikið endurnýjaða 66,8 fermetra 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi í góðu þríbýlishúsi á eftirsóttum stað í miðborginni auk hlutdeildar í sérgeymslu á baklóð hússins.

Nýtt parket, nýtt baðherbergi, ný eldhúsinnrétting og tæki, nýlegar raflagnir og tafla o.fl. 
Skv. upplýsingum frá eiganda var húsið í heild í eigu verkalýðsfélaga á Húsavík fyrir um 20 árum síðan og þá voru gler og gluggar, neysluvatnslagnir og ofnar og ofnalagnir endurnýjuð. Klóaklagnir undir húsi og að útvegg eru úr plasti.  Þakjárn, þakrennur og niðurföll eru í góðu ástandi.

Lýsing eignar:

Forstofa, parketlögð og með fatahengi.
Barnaherbergi, parketlagt.
Baðherbergi, nýlega endurnýjað, flotað gólf og flísalagðir veggir, nýtt wc., nýr sturtuklefi og innrétting með tengi fyrir þvottavél.
Hjónaherbergi, parketlagt og með fataskápum.
Stofa, parketlögð og björt.
Eldhús, opið við stofu, parketlagt og með góðum gluggum. Ný hvít innrétting með innbyggðum ísskáp, innbyggðum frysti og innbyggðri uppþvottavél.
Hlutdeild í um 10 fermetra geymslu, er á baklóð hússins og er  hún um 4,5 fermetrar að stærð og ekki inni í stærð eignarinnar í Fasteignaskrá.

Húsið að utan er klætt með steni og lítur vel út.  Gluggar og gler eru í góðu ástandi sem og þakjárn.

Lóðin er 151,0 fermetrar að stærð, sameiginleg með öðrum eignarhlutum hússins, tyrfð og með trjágóðri, afgirt.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað í miðborginni.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. nóv. 2018
35.350.000 kr.
34.900.000 kr.
66.8 m²
522.455 kr.
3. apr. 2012
18.200.000 kr.
52.000.000 kr.
167 m²
311.377 kr.
3. apr. 2012
18.200.000 kr.
19.453.000 kr.
66.8 m²
291.213 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone