Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Asparfell 2

111 Reykjavík

89.900.000 kr.

511.086 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2051781

Fasteignamat

82.700.000 kr.

Brunabótamat

79.990.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1972
svg
175,9 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Domusnova fasteignasala hefur fengið í einkasölu fallega íbúð á efstu hæð að Asparfelli 2 ásamt bílskúr. Svalir til norðurs og suðurs sem gefa frábært útsýni yfir borgina og Faxaflóann. Íbúðin hefur verið endurnýjuð á undanförnum árum s.s. parket, eldhúsinnrétting, baðinnrétting og skipt hefur verið um alla glugga og/eða gler og svalhurðir. Húsið er klætt utan.  
Vinsamleg bókið skoðun hjá arni@domusnova.is eða í síma 6634290, ekki verður um opið hús að ræða heldur fá þeir sem áhuga hafa skoðun fyrir sig.


Þegar komið er inní íbúðina verður fyrir hol með gestasnyrtingu á hægri hönd, fataskápur í holi. Alrými eldhúss, borðstofu og stofu er beint innaf holinu og til vinstri. Útgengt er á suðursvalir með frábæru útsýni úr stofunni. Innaf stofu er herbergi með geymslu innaf. Herbergjagangur með 3 svefnherbergjum (eru 4 á teikningu en búið að sameina tvö í eitt). Parket á alrými og herbergjum en flísar í forstofu, eldhúsi, baðherbergjum og herbergjagangi. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni. Í kjallara er sérgeymsla, hjóla- og vagnageymsla á stigapalli. Bílskúr fylgir eigninni sem er 21 fm að stærð.

Stofa er til suðurs með útgengi á svalir með gríðarlegu útsýni til suðurs og vesturs, í sama rými er borðstofa, eldhús og sjónvarpsstofa, viðarparket á gólfi nema flísar á eldhúsgólfi.
Herbergi er innaf stofu með innangengt í geymslu og/eða fataherbergi, parket á gólfi. 
Á herbergjagangi, sem er flísalagður, eru baðherbergi með baðkari og sturtuaðstöðu, flísalagt í hólf og gólf, rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum og tvö minni herbergi en annað þeirra var sameinað úr tveimur herbergjum og er teikning þannig. Í forstofu sem er flísalögð er skápur. Við forstofu er gestasnyrting.Frammi á stigagangi eru læst geymsluhólf sem og skógeymslak og hjóla- og vagnageymsla. Þvottahús er á hæðinni með opnanlegu fagi og þvottasnúrum.
í snyrtilegri sameign er sérgeymsla.  Bílskúr fylgir eigninni sem er 21fm að skráðri stærð.

Íbúðin hefur verið endurnýjuð á undanförnum árum og viðhaldi við húsið hefur verið vel sinnt og eru nýir gluggar að sunnan (2023) og við sjónvarpsstofu og í herbergjum ca 2008, þak hefur verið yfirfarið reglulega og er húsið klætt utan. Mjög góð eign með frábært útsýni á góðum stað.

Smellið hér til að fá sölufyrilit sent 

Nánari upplýsingar veita:
Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
  • img
    Árni Helgason
    Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
    Domusnova fasteignasala
    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone
    img

    Árni Helgason

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone

    Árni Helgason

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur