Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Katla Hanna Steed
Vista
sumarhús

Sólvellir 4

806 Selfoss

99.000.000 kr.

542.763 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2346221

Fasteignamat

64.200.000 kr.

Brunabótamat

83.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2018
svg
182,4 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.

Lýsing

Miklaborg kynnir:

Einstakur sumarbústaður við Sólvelli 4 í 806 Bláskógabyggð. Eignalóð. Sumarbústaðurinn er byggður árið 2018 og er samtals 122,4 fm, gestahús samtals 30 fm. Að auki er köld vélageymsla um 15 fm og upphituð geymsla 15 fm. Samtals 182,4 fm. Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon löggiltur fasteignasali í síma 692 2704 og fridjon@miklaborg.is

Sumarhúsasvæðið afmarkast af girðingu og skurðum við skipulagt íbúðasvæði Reykholts að norðaustanverðu, landi Goðatúns að suðvestanverðu, áður skipulögðum sumarhúsalóðum til suðaustur og við heimaland Reykjavalla til norðvestur sbr. deiliskipulag svæðisins sjá hér. Sumarbústaðurinn er á 5267 fm eignalóð.


Sumarbústaðurinn er byggður árið 2018. Mikil lofthæð og vandaður frágangur. Gólfflötur er töluvert stærri á risi en opinber gögn gefa til kynna.

Anddyri: Komið inn í anddyri, parket á alrými. Fatahengi og gengið inn í þvottahús / geymslu til hægri.

Svenherbergi: Á vinstri hönd eru tvö svefnherbergi, annað með fataskápum. Parket á gólfi.

Baðherbergi: Við enda forstofugangs er baðherbergi. Vinyl flísar á gólfi og fibo baðplötur á veggjum. Sturta, innrétting og upphengt WC. Útengt út á pall frá baðherbergi að pottasvæði.

Eldhús, borðstofa og stofa: Stór og góð eldhúsinnrétting, gott borðpláss og skápapláss. Bjort og opin stofa og borðstofa. Mikil lofthæð í alrými. Útengt frá borðstofu út á pall.

Ris: Gengið upp tröppur frá sjónvarpsholi. Gott seturými og bar. Einnig er rúmgott svefnherbergi ásamt geymslurými í risinu.

Gestahús er skráð 30 fm að stærð. Skiptist í alrými, baðherbergi og svefnherbergi. Vönduð og góð eldhúsinnrétting í alrými. Rúmgott svefnherbergi og baðherbergi með sturkuklefa, einfaldri innréttingu og WC. Flísar á gólfi og Fibo baðplötur á veggjum.

Í kringum sumarhúsið og gestahúsið er stór pallur. Við hlið gestahússins er upphituð og rúmgóð geymsla samtals 15 fm að stærð. Á bílastæðinu er einnig köld geymsla sem er samtals 15 fm að stærð sem nýtist vel fyrir tæki og tól .

Virkilega fallegt, vel skipulagt sumarhús sem vert er að skoða. Allar nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon löggiltur fasteignasali í síma 692 2704 eða fridjon@miklaborg.is

Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík