Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Hringbraut 119

101 Reykjavík

56.900.000 kr.

1.109.162 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2024696

Fasteignamat

42.300.000 kr.

Brunabótamat

27.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1984
svg
51,3 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
svg
Laus strax

Lýsing

Ragnar Guðmundsson S: 844-6516 löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á fimmtu og efstu hæð í lyftuhúsi að Hringbraut 119 í vesturbænum. Íbúðin er á tveimur hæðum og að sögn eiganda er stór hluti hennar undir súð virkar gólfflötur stærri en uppgefin fermetratala. Íbúðin skiptist í anddyri/hol, eldhús, alrými sem rúmar bæði stofu og borðstofu, baðherbergi með þvottaaðstöðu og rúmgóða efri hæð sem rúmar svefnherbergisloft. Frá stofu er útgengt á svalir með skemmtilegu útsýni. Stór nýmáluð sérgeymsla með hillum og mikilli lofthæð er staðsett á jarðhæð sameignar ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. 
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma: 844-6516 eða á ragnar@fstorg.is

Viðhald íbúðar og sameignar:
Að sögn eiganda hafa miklar viðgerðir hafa átt sér stað á húsinu að utan sem og innan. Íbúðin var mikið endurnýjuð sumarið 2024. Íbúðin var máluð, skipt var um gólfefni, baðherbergi mikið endurnýjað, eldhús uppgert með endurnýjuðum eldhústækjum ásamt því að unnið var í rafmagni íbúðar. Verið er að ljúka við viðgerðir á múr og málningu utandyra ásamt málningarvinnu á svölum fjölbýlishússins. Verið er að leggja lokahönd á að skipta út teppum á göngum sameignar ásamt málningarvinnu innan sameignar. Sú viðgerð verður fullgreidd af seljendum.

Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Anddyri:
 Gengið er inn í nýmálað anddyri með hvítum innbyggðum forstofuskáp. Nýtt harðparket flæðir yfir öll rými íbúðar nema baðherbergi. 
Eldhús: Eldhúsið er nýmálað með nýlakkaðri innréttingu, nýrri hillu, nýlakkaðri borðplötu, nýrri eldavél, uppþvottavél og nýlegum ísskáp. 
Stofa/borðstofa: Bæði stofan og borðstofan eru rúmgóðar, nýmálaðar og bjartar í samliggjandi rými með harðparketi á gólfi. Frá stofu er útgengt á nýmálaðar svalir með skemmtilegu útsýni.
Baðherbergi: Nýlega var baðherbergið mikið endurnýjað. Það var málað, gólfið flotað og lakkað, sett var upp hvít innrétting, ný handlaug, nýir skápar og nýtt klósett. Tengi er fyrir þvottavél.
Efri hæð:
Svefnherbergi:
 Frá stofu er stigi á rúmgóða efri hæð/ris sem núverandi eigendur hagnýta sem svefnherbergisloft. Hæðin er nýmáluð með nýju parketi. Búin innbyggðum fataskáp. Stórir gluggar með opnanlegu fagi birta upp hæðina. Svefnherbergisloftið er talsvert undir súð og að sögn eiganda virkar rýmið stærra en opinberar skráningartölur segja til um.
Geymsla: Í kjallara sameignar er rúmgóð geymsla með mikilli lofthæð og hillum. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign. Í bílakjallara er svæði sem eigendur hafa hagnýtt sem sameiginlega bílaþvottaaðstöðu.

Hér er um að ræða fallega, vel skipulagða og mikið uppgerða eign á vinsælum stað í vesturbæ Reykjavíkur. Skemmtileg staðsetning á höfuðborgarsvæðinu fyrir þá sem vilja vera nálægt bæjarlífi miðbæjarins. Nálægð við góðar samgönguæðar tengja svo hverfið við alla staði borgarinnar. Einnig er stutt er alla helstu þjónustu og fallegar gönguleiðir meðfram sjávarsíðunni.
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
 

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. apr. 2024
42.300.000 kr.
45.800.000 kr.
51.3 m²
892.788 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone