Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1948
88,6 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Fasteignasalan TORG kynnir :
Mjög björt og falleg 3 herbergja enda íbúð á annari hæð í glæsilega uppgerðu húsi á þessum sívinsæla stað í vesturbænum. Eignin skipsti í forstofu, stofu, borðstofu, svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, auka herbergi í risi með aðgengi að gestasalerni og góðri geymslu í kjallara. Húsið er mjög mikið endurnýjað að utan. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is
Nánari lýsing :
Komið er inn í forstofu/gang með innbyggðum fatahengi, parket á gólfi. Fallegt eldhús uppgert að hluta til og voru sérsmíðaðar hurðir settar á skápana til að viðhalda upprunalegt útlit. Innbyggð uppþvottavél, flísar á milli skápa, dúkur á gólfi. Mjög rúmgóð og björt stofa og borðstofa með stórum hornglugga sem gerir rýmið sérstaklega bjart og vel hannað, útgengt frá borðstofu út á suður svalir. Möguleiki er á að loka borðstofu og breyta í annað svefnherbergi. Skipt var um alla glugga árið 2022 og settir kóniskir gluggapóstar. Fallegt parket er á gólfi. Rúmgott svefnherbergi með innbyggðum skápum, parket á gólfi, fallegur horngluggi setur mikinn svip á herbergið. Baðherbergi er með baðkari með sturtuaðstöðu, innrétting við vask og einnig innbyggður skápur, flísar á veggjum og dúkur á gólfi. Fallegur hring gluggi er á baði. Herbergi í risi er með dúk á gólfi og velux glugga. Við hlið herbergis er aðgengi að sameiginlegu salerni. Geymsla er í kjallara og er hún með hillum. Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi er í kjallara ásamt hjóla- og vagnageymslu. Hvíttað eikarparket er á holi, stofu, borðstofu og svefnherbergi.
Miklar framkvæmdir voru á húsinu sem kláruðust sumarið 2022. Þak var endurnýjað, skorsteinar fjarlægðir, gluggar og gler endurnýjuð eftir þörfum, gert var við múrinn og húsið endursteinað. Var lagt sérstaklega upp með að halda í upprunalegt útlit hússins sem hannað var af Einari Sveinssyni arkitekt. Garðurinn er verðlaunagarður og er nýbúið að leggja nýjan sand í stíga og beð. Garðnefnd kannar möguleika á að setja upp garðaskála fyrir íbúa. Garðurinn er með matjurtargarði ásamt hjólastöndum. Frárennsli, skolp, dren, var allt endurnýjað 2006.
Fasteignamat fyrir 2025 verður : 68.550.000.-kr
Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. nóv. 2014
21.650.000 kr.
29.700.000 kr.
78.4 m²
378.827 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024