Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Upplýsingar
63 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR ÖRYGGISÍBÚÐIR NÁLÆGT FALLEGRI STRÖND*
*ÖRYGGISHNAPPUR OG FJARHJÁLPARÞJÓNUSTA FYLGIR ÖLLUM ÍBÚÐUM*
Fallegar og vel skipulagðar 2ja herb. íbúðir vel staðsettar í Mil Palmeras, fallegum spænskum strandbæ, um 60 mín akstur suður frá Alicante. Hægt er að velja um íbúðir á jarðhæð með sér garði, á miðhæðum með góðum svölum og á efstu hæð með svölum og sérþaksvölum.
Frábær sameign með fallegum sameiginlegum sundlaugargarði, sameiginlegu samkomuherbergi þar sem hægt er að spila og taka þátt í ýmsum tómstundum, líkamsrækt, aðstaða fyrir sjúkraþjálfara, sér herbergi fyrir snyrtifræðinga ofl. Gott aðgengi fyrir fatlaða, td. lyfta ofan í sundlaug, breiðari hurðarop, breiðari gangar í sameign og sérútbúin baðherbergi fyrir fólk með skerta hreyfigetu og fólk í hjólastólum.
Sérstök áhersla er lögð á aukið öryggi íbúa og munu allar íbúðir hafa öryggishnapp með neyðarþjónustu allan sólarhringinn, alla daga ársins. Einn aðalhnappur er í íbúðinni og annar færanlegur sem hafður er um úlnlið. Íbúar eru þannig beintengdir hjálparmiðstöð Rauða Krossins á Spáni sem veitir neyðaraðstoð þegar á þarf að halda og er kostnaður innifalinn í húsgjöldum.
Einnig gefst íbúum kostur á að fá Health Premium kortið frá Quiron Salud, alþjóðlega sjúkrahúsinu á svæðinu, sem talið er með bestu sjúkrahúsunum í Evrópu. Health Premium kortið veitir forgang og betra aðgengi að persónulegri þjónustu og heilsuráðgjöf til að bæta lífsgæði viðkomandi.
Hér er um að ræða algjöra nýjung á fasteignamarkaðnum á Spáni, sem nýtist fólki sem vill búa í góðu loftslagi og öruggu umhverfi og hafa gott aðgengi að allri heilbrigðisþjónustu.
Fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni. Göngufæri á ströndina og í verslanir og veitingastaði í bænum, Fallega gróið umhverfi með göngu- og hjólaleiðum. Íbúðirnar eru vel skipulagðar með góðu alrými þar sem eru stofa, borðstofa vel tengt eldhúsi, einu svefnherbergi og einu baðherbergi. Lyfta. Stæði í bílakjallara. Geymsla fylgir sumum íbúðunum. Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali,adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir. GSM 777 4277
Ekta staður fyrir þá sem vilja njóta útiveru í góðu veðri allt árið, eða jafnvel flytja alfarið í sólarparadísina á Spáni.
Verð miðað við gengi 1 evra = 150 ISK:
2ja herb.: 1 svefnherb. + 1 baðherb. verð frá: 157.000 Evrur. (ISK 23.500.000) + kostn við kaupin.
Á sama stað er einnig hægt að fá stærri íbúðir.
3ja herb.: 2 svefnherb. + 1 baðherb. verð frá 180.000 Evrur (ISK 27.000.000) + kostn. við kaupin. UPPSELT
3ja herb.: 2 svefnherb. + 2 baðherb. verð frá 201.000 Evrur (ISK 30.100.000) + kostn. við kaupin. UPPSELT
Tilbúnar til afhendingar strax.
Hægt er að fá íbúðirnar afhentar fullbúnar húsgögnum og rafmagnstækjum gegn viðbótargjaldi, þannig að allt verði tilbúið þegar flutt er inn.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir allt að 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í allt að 13%.
Eiginleikar: sér garður, sameiginlegur sundlaugargarður, bílakjallari, air con, þakverönd, strönd,
Svæði: Costa Blanca, Mil Palmeras,