Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Borga Harðardóttir
Þyrí Guðjónsdóttir
Vista
raðhús

Melsel 9

109 Reykjavík

148.000.000 kr.

466.289 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2056049

Fasteignamat

135.150.000 kr.

Brunabótamat

130.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1982
svg
317,4 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Valborg fasteignasala kynnir eignina Melsel 9, 109 Reykjavík sem er þriggja hæða rúmgott og bjart raðhús ásamt tvöföldum bílskúr á eftirsóttum fjöldskylduvænum stað í Seljahverfinu.  Melsel 9 er skráð 317.4 fm þar af er 49 fm tvöfaldur bílskúr.  Auk þess er u.þ.b. 60 fm óskráð rými í kjallara þannig að alls er eignin nálægt 377 fm.

Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Forstofa: Rúmgóðir skápar og flísar á gólfi.  Möguleiki er á að búa til gestasnyrtingu.
Skáli: Bjartur með parketi á gólfi.  Aukin lofthæð.
Stofa og borðstofa: Stór stofa með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á hellulagðan skjólgóðan sólpall sem snýr í suður.
Eldhús: Er með viðarinnréttingu og ljósum flísum milli skápa. Ljósar flísar á gólfi.
Þvottahús: Er innaf eldhúsi. Gluggi og hurð út í garð. Gengið frá eldhúsi í þvottahús.
Búr: Sem er á teiknngu er sameinað þvottahúsi.
Bílskúr: Tvöfaldur bílskúr sem er 49 m2.  Ofn, kalt vatn en eftir að klára rafmagn.  Rafdrifinn hurðaopnari á báðum hurðum.

Efri hæð:
Fjölskylduherbergi:  Upp á efri hæð er parketlagður stigi og þar er komið inn í bjart fjölskylduherbergi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott og bjart hjónaherbergi með góðum skápum. Parket á gólfi. Úr hjónaherberginu er gengið út á svalir.
Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Innrétting, baðkar, sturta, vegghengt salerni, handklæðaofn og gluggar.

Kjallari:
Svefnherbergi: Með parketi, skápum og gluggum.
Baðherbergi: Salerni, sturta og vaskur.  Flísar á gólfi, í sturtu og á veggjum að hluta.
Geymsla:  Dúkur á gólfi.
Óskráð rými 60 fm sem er nýtt sem geymslur en býður upp á ýmsa möguleika. 
Lofthæð kjallara er ca 220 cm.

Húsið steinsteypt með hraunáferð og er að mestu leyti upprunalegt. Gert var við múr árið 2023 og skipt um alla ofna nema einn fyrir 5 árum.  Komið er að því að skipta um þakrennur og laga þakkant.  Snjóbræðsla er í gangstíg og við inngang.
Parket á öllum gólfum á öllum hæðum..


Bókið einkaskoðun.  Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Steinþórsson viðskiptafræðingur - löggiltur fasteignasali, í síma 896-5865, tölvupóstur alli@valborgfs.is.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.  Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
 

Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone
Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone