Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Eiríkur Svanur Sigfússon
Aron Freyr Eiríksson
Melkorka Guðmundsdóttir
Kristófer Fannar Guðmundsson
Svala Haraldsdóttir
Stefán Rafn Sigurmannsson
Upplýsingar
svg
Byggt 2002
svg
201,8 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni

Lýsing

Virkilega vandað, fallegt og vel staðsett endaraðhús á tveimur hæðum í botnlangagötu við Þrastarás 42 í Hafnarfirði,
Mikið og gott útsýni er úr eigninni og innréttingar sérsmíðaðar.
Eignin skiptist þannig að efri hæð er 102,9 fm, neðri hæð 70,9 fm og bílskúr 28 fm alls 201,8 fm skv Fasteignaskrá.


Nánari lýsing:
Efri hæð:
Forstofa með góðum fataskápum sem ná upp í loft, flísar á gólfi, falleg glerhurð sem skilur að forstofu og gang.
Stofa og eldhús flæða saman í bjart rými með aukinni lofthæð og innfelldri lýsingu.
Eldhús með sérmíðuðum innréttingum úr hnotu og glerflísum á milli skápa. Ofn í vinnuhæð ásamt örbylgjuofni. Stæði fyrir amerískan ísskáp.
Stór eldunareyja með gashelluborði og stórum háf. Mikið geymslurými í eyjunni sem og eldhúsinnréttingu. Granít á bekkjum.
Útgengt út á sólpall úr eldhúsi.
Stofa með sérsmíðuðum skenk og glerskáp, gegnheilt parket á gólfi. Útgengt út á flísalagðar útsýnissvalir út stofu.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Baðherbergi er virkilega fallegt með tvöföldum vask, grantít á bekkum, steyptum sturtuklefa og baði. Upphengt salerni og góð innrétting.


Neðrí hæð:
Breiður stigi á milli hæða teppalagður og með glerveggjum.
Sjónvarpshol með útgengt út á sólpall, möguleiki að breyta því í herbergi.
Tvö góð svefnherbergi , annað með skáp, parket á gólfi.
Baðherbergi með sturtu, innrétting og upphengt salerni. Lítið falið rými innaf baðherberginu sem í dag er nýtt sem vínkjallari. 
Þvottahús með útgengt út á pall, stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Hillur og skápar.

Bílskúr
Flísalagður með þriggja fasa rafmagni, geymslulofti, vask, heitt og kalt vatn.
Varmaskiptir fyrir vatn íbúðarinnar.

Sólpallar í kringum húsið með geymslu undir efsta pallinum. 
Heitur pottur með nuddi frá Trefjum, stjórnstöð fyrir hann í þvottahúsi.

*Viðhaldslítill garður.
*Sérsmíðaðar innréttingar úr hnotu frá Grindinni.
*Hurðar sérsmíðaðar úr hnotu, aukin hæð er á hurðunum.
*Granít á bekkjum eldhúss og baðherbergja.
*Gólfefni gegnheilt parket (hnota) og flísar.
*Gluggar út viðhaldslitlu efni.
*Hiti í plani og stéttum fyrir framan hús.
*Endahús í botnlangagötu
*Steniklæðning
*Einstakt útsýni
*Lóð stærri en afmarkaður garður er í dag.

Falleg og vönduð eign í enda á botnlangagötu á þessum vinsæla og barnvæna stað í Hafnarfirði þar sem stutt er í 
skóla, leikskóla, fallegar göngu-og hjólaleiðir í fallegri nátturu í nágrenninu.


Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone