Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Pálmason
Vista
fjölbýlishús

Drápuhlíð 11

105 Reykjavík

72.900.000 kr.

818.182 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2030229

Fasteignamat

63.000.000 kr.

Brunabótamat

40.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1946
svg
89,1 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Fasteignamiðlun og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna fallega, bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja, 89,1fm íbúð á neðstu hæð að Drápuhlíð 11, 105 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 00-01, fastanúmer 203-0229 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin skiptist í hol, stofu, eldhús, tvö mjög rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og sér geymslu. Eignin hefur fengið gott viðhald í gegnum árin þar sem húsið var steypuviðgert og endursteinað árið 2009. Gler og gluggar í suðurhlið hússins var endurnýjað árið 2009. Sameiginlegar lagnir voru endurnýjaðar árið 2000. Kaldavatnslagnir voru endurnýjaðar árið 2005. Hitalagnir eru utanáliggjandi. Parket á íbúðinni var pússað og hvíttað árið 2018. Innihurðir voru pússaðar og sprautulakkaðar árið 2018. Falleg og vel skipulögð íbúð í afar vinsælu hverfi í Hliðunum í Reykjavík. Stutt í alla helstu verslun og þjónustu, skóla á öllum stigum, íþróttasvæði Reykjavíkurstórveldisins Vals ásamt að vera með náttúruperlurnar Klambratún, Öskjuhlíð og Nauthólsvík í nokkra mínútna göngufjarlægð.

Fasteignamat fyrir árið 2025 skv. HMS er 64.350.000kr.


Eignin Drápuhlíð 11 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 203-0229, birt stærð 89.1 fm, þar af er geymsla merkt 0003 skráð 2,6fm.

Nánari lýsing:

Hol: Tengir saman öll rými íbúðar. Gengið inn í hol úr gangi
Eldhús: Ljós innrétting með efri og neðri skápum. Aðstaða fyrir uppþvottavél.
Stofa: Rúmgóð og björt með fallegum gluggum og útgengi út í suðurgarð með lítilli hellulagðri sér verönd.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólfBaðkar með sturtu, klósett og baðinnrétting með neðri skáp, vask og speglaskáp fyrir ofan vask.
Svefnherbergi I: Rúmgott, 9,3fm
Svefnherbergi II: Mjög rúmgott, 18,8fm með opnum fataskáp. Gott skápapláss.
Geymsla: Aðgengileg úr "forstofu". 2,6fm birtir. Gólflötur og geymslupláss meira en uppgefnir fermetrar gefa til kynna.
Sameignargangur: Nýttur sem forstofa fyrir íbúðina með fatehengi og skóhillum. Flísar á gólfi.Gengið í íbúð úr gangi.
Þvottahús:  Er sameiginlegt með annarri íbúð og aðgengilegt úr gangi á íbúðarhæðinni. Rúmgott og snyrtilegt þar sem hvor íbúð er með sína þvottavél..

Garður: Fallegur gróin garður sunnan og norðan megin við húsið.

Falleg, björt og vel skipulögð íbúð í afar vinsælu, fjölskylduvænu og grónu hverfi í Hlíðunum í Reykjavík. 

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur hreidar@fasteignamidlun.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Fasteignamiðlun

Fasteignamiðlun

Grandagarði 5, 101 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. nóv. 2019
39.400.000 kr.
43.500.000 kr.
89.1 m²
488.215 kr.
1. mar. 2018
36.150.000 kr.
25.305.000 kr.
89.1 m²
284.007 kr.
7. sep. 2010
18.900.000 kr.
21.000.000 kr.
89.1 m²
235.690 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Fasteignamiðlun

Fasteignamiðlun

Grandagarði 5, 101 Reykjavík