Lýsing
Miklaborg kynnir: Um er að ræða 4ra herbergja 117,5 fm horníbúð ásamt stæði í bílageymslu B39 og sérgeymslu. Eign merkt 212 er á 2. hæð, eignin skiptist í anddyri, baðherbergi, sér þvottahús, þrjú svefnherbergi, eldhús og stofu, og svalir til vesturs og 10,1 fm geymslu á jarðhæð. Sameiginlegir þakgarðar eru á 4. 6. og 7. hæðinni. Einstök staðsetning í hjarta borgarinnar nærri helstu atvinnusvæðum og útivistarmöguleikum. Eignir eru tilbúnar til afhendingar við kaupsamning
Nánari upplýsingar veitir Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is
Um er að ræða 64 íbúðir, sem eru í mismunandi stærðum, 2ja herbergja til 4ra herbergja íbúðir í sjö hæða nýbyggingu við Borgartún, 105 Reykjavík.
Heimasíða verkefnis. www.b24.is
Íbúðum er skilað fullbúnum með öllum gólfefnum; Baðherbergi og þvottahús með flísalögðum gólfum og baðherbergi eru með flísalögðum veggjum upp að lofti á a.m.k tvo vegu. Harðparket er á öðrum gólfflötum ásamt hvítum gólflistum. Í lyftuforrýmum að innan eru veggir sandspartlaðir og málaðir. Í stigahúsum verða veggir spartlaðir og málaðir. Veggir og loft í bílageymslu verða grófviðgerðir og rykbundnir með glæru efni. Gólf í geymslum, geymslugangi, hjóla- og vagnageymslu verða lökkuð. Lagnir verða sjáanlegar í loftum í geymslum. Sameign skilast fullbúin með fullfrágenginni lyftu.
Borgartúnið iðar af mannlífi og er steinsnar frá helstu menningarviðburðum borgarinnar.
Nánari upplýsingar veita:
Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is
Katla Hanna Steed löggildur fasteignasali í síma 822 1661 eða katla@miklaborg.is
Ingimundur Ingimundarson aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is