Lýsing
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Kaupstaður Fasteignasala kynnir rúmgóða og bjarta 112,5 fm íbúð á fjórðu hæð, frábært útsýn, tvennar svalir og sólskála í lyftuhúsi við Eiðistorg á Seltjarnarnesi.
Nánari lýsing; Íbúðin skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, eldhús, stofu og sólstofu á neðri hæð, og 2 svefnherbergi, baðherbergi, og hol á efri hæð.
Forstofa er rúmgóð með fataskápum og gestasnyrtingu á hægri hönd.
Stofan er opin og rúmar vel bæði setustofu og borðstofu og tengist við sólstofu. Teppalagður stigi milli hæða.
Á efri hæðinni er hjónaherbergi með útgengi út á svalir til vesturs með frábæru útsýni, góðir fataskápar. Herbergi er með fataskáp og gluggum til vesturs.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf, baðkar, upphengd sturta, innrétting. Á efri hæðinni er hol að hluta til undir súð sem er ekki inni í fermetratölu íbúðarinnar en góð viðbót sem nýtist vel.
Parket er á gólfum íbúðarinnar en flísar á baðherbergjum.
Aðkoma að húsinu og bílastæði er frá vesturhlið hússins en einnig er innangengt frá verslunarkjarna á Eiðistorgi.
Sameign; sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi er á sömu hæð og íbúðin en sér geymslur sem tilheyra íbúðunum eru á 1. hæð, geymsla þessarar íbúðar er 6,9 fm.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.